fasteignasölur.is
Vesturberg 26
Opið hús í dag kl. 17:15–17:45
1 af 36

Um eignina

LIND fasteignasala / Tara Sif Birgisdóttir lögg. fasteignasali kynnir snyrtilega og mikið endurnýjaða fjögurra herbergja 93,6 fm íbúð á 4. og efstu hæð í snyrtilegu fjölbýli við Vesturberg 26 í 111 Reykjavík. 

Bjart og opið alrými, rúmgóðar svalir með fallegu útsýni, eldhús og baðherbergi nýlega tekið í gegn, nýlegt gólfefni í öllum rýmum og allar innihurðir og innstungur endurnýjaðar. Sameign er snyrtileg, nóg af stæðum á bílaplani og hleðslustöðvar. Húsið hefur fengið gott viðhald í gegnum árin. 

Framkvæmdir síðustu ár skv fyrri fasteignaauglýsingum:
- Húsið klætt að utan 2008
- Þak endurnýjað 2013
- Gluggar og gler endurnýjað eftir þörfum, húsið múrviðgert og málað 2019 
- Skólplagnir undir húsi endurnýjaðar 2023. 

Eignin skiptist í: Forstofu, eldhús, samliggjandi borðstofu/stofu, þrjú svefnherbergi og baðherbergi. 

Nánari lýsing:
Forstofa: Parket á gólfi, rúmgóður fataskápur. 
Stofa/ borðstofa: Parket á gólfi. útgengt á svalir. 
Eldhús: Nýlega endurnýjað að mestu, hvít innrétting að neðan með dökkri borðplötu og góðu skápaplássi, dökkir viðarskápar að ofan, innbyggður ísskápur og uppþvottavél, span helluborð, parket á gólfi. 
Baðherbergi: Endurnýjað að mestu, gráar flísar á gólfi og veggjum, sturta með gleri, hvít innrétting með dökkri borðplötu, tengi fyrir þvottavél og þurrkara. 
Hjónaherbergi: Rúmgott, parket á gólfi, stór fataskápur. 
Svefnherbergi I: Parket á gólfi, innbyggður fataskápur.
Svefnherbergi II: Parket á gólfi. 
Geymsla: Í kjallara, skráð 5,2 fm ásamt sameiginlegri vagna- og hjólageymslu. Einnig er sameiginlegt þvottahús. 

Allar upplýsingar um eignina veitir Tara Sif Birgisdóttir í síma 847 8584 / tara@fastlind.is
​​​​​​
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila 
    Fyrstu kaup - 0,4% af heildarfasteignamati
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.

Vesturberg 26

111 Reykjavík
59.900.000 kr.640 þ./m²
Fjölbýlishús3 svefn · 1 bað
Byggingarár1970TegundFjölbýlishúsStærð93,6 m²Herbergi4InngangurSameiginlegurFasteignanúmerF20508194Fasteignamat58.250.000 kr.Brunabótamat44.950.000 kr.
Skráð hjá
Lind fasteignasala ehf.
HeimilisfangBæjarlind 4, 201 KópavogurSími510-7900

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 36 myndir

Upp ↑