fasteignasölur.is
Hátún 6
1 af 11

Um eignina

Garðatorg Eignamiðlun kynnir fallega og bjarta 2ja herbergja íbúð á 7. hæð við Hátún 6 í Reykjavík. Frábær fyrstu kaup og laus við kaupsamning!

Íbúðin er skráð 54,4 fm, þar af 50 fm íbúðarrými og 4,4 fm sérgeymsla í kjallara. Lyfta er í húsinu. Einnig fylgja suðursvalir með fallegu útsýni.

Komið er inn á gang með fataskáp. Svefnherbergið er rúmgott og baðherbergi flísalagt með sturtu og upphengdu salerni. Stofan er björt og þaðan er útgengt á svalir. Eldhúsið er með hvítri innréttingu, flísum á milli skápa og tengi fyrir uppþvottavél. Parket er á gólfum, að undanskildum flísalögðum rýmum. Í sameign er aðgangur að sameiginlegu þvottahúsi, hjóla- og vagnageymslu. Næg bílastæði eru við húsið.

Húsið var múrviðgert og málað að utan árið 2021, auk þess sem skipt var um glugga og gler í öllu húsinu árið 2017.
Staðsetningin er góð, með miðbæ Reykjavíkur í göngufæri og fjölbreytta þjónustu, samgöngur og útivistarsvæði í nágrenninu.

Allar nánari upplýsingar veitir og bókun á skoðunartíma: Ragnar G. Þórðarson, Löggiltur fasteignasali, ragnar@gardatorg.is

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill því Garðatorg eignamiðlun skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar 
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð

Verðsaga

3 þinglýstir kaupsamningar
Í sölu núnaÁsett verð · Garðatorg eignamiðlun
54.600.000 kr.1004 þ./m²
+58,3% á 5 árum
31. maí 2021Þinglýstur kaupsamningur
34.500.000 kr.634 þ./m²
+35,3% á 5 árum
3. júní 2016Þinglýstur kaupsamningur
25.500.000 kr.469 þ./m²
+40,1% á 3 árum
10. september 2013Fyrsta sala
18.200.000 kr.335 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Hátún 6

105 Reykjavík
54.600.000 kr.1.004 þ./m²
Fjölbýlishús1 svefn · 1 bað
Byggingarár1961TegundFjölbýlishúsStærð54,4 m²Herbergi2InngangurSameiginlegurLyftaFasteignanúmerF20102532Fasteignamat51.600.000 kr.Brunabótamat27.500.000 kr.
Skráð hjá
Garðatorg eignamiðlun
HeimilisfangLyngás 11, 210 GarðabærSími545-0800

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 11 myndir

Upp ↑