fasteignasölur.is
Vatnsstígur 16-18
1 af 30

Um eignina

Eignamiðlun kynnir:

Snyrtileg og rúmgóð íbúð í lyftuhúsi á góðum stað í miðborg Reykjavíkur. Sér stæði í bílakjallara og öll helsta þjónusta og afþreying í göngufæri. Fallegt útsýni til sjávar. Eignin getur verið laus strax við kaupsamning. Íbúðin er á þriðju hæð með rúmgóðum svölum til suðurs.

Komið er inn á parketlagt anddyri/gang með fataskápum.
Gangur sem tengir saman allar vistverur íbúðar en þær eru: forstofa, hjónaherbergi, baðherbergi, þvottaherbergi og alrými með stofu og eldhúsi.
Rúmgott parketlagt svefnherbergi með fataskápum meðfram heilum vegg. Útsýni til sjávar.
Baðherbergi er flísalagt með sturtuklefa og baðkari. Eikarinnrétting með svartri granítborðplötu.
Þvottahús er innan íbúðar. Flísalagt. Hvít innrétting með skolvaski og tengi fyrir þvottavél.
Eldhús er opið við stofu. Vönduð eikarinnrétting með eyju. Granítsteinn á borðum. Spanhelluborð og blástursofn í vinnuhæð. Parketlagt.
Rúmgóð stofa með gluggum til suðurs. Útgengt á rúmgóðar svalir til suðurs.
Sér geymsla í kjallara fylgir íbúðinni ásamt sér bílastæði í bílageymslu. Íbúðin hefur aðgang að sameiginlegri hjólageymslu.

Íbúðin er staðsett í Skuggahverfi þar sem stutt er í iðandi mannlíf og alla þjónustu. Í göngufæri við helstu verslanir, veitingastaði og afþreyingu af ýmsu tagi, hvort sem horft er til miðborgarinnar, Grandagarðs, Skólavörðuholtsins eða víðar.

Nánari upplýsingar veita:
Sverrir Kristinsson, löggiltur fasteignasali í síma 588-9090 eða sverrir@eignamidlun.is
Unnar Kjartansson, löggiltur fasteignasali, í síma 867-0968 eða unnar@eignamidlun.is

***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum. 

Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.

Heimasíða Eignamiðlunar

Eignamiðlun á Facebook

Verðsaga

1 þinglýstur kaupsamningur
Í sölu núnaÁsett verð · Eignamiðlun
99.900.000 kr.969 þ./m²
+119,6% á 13 árum
30. janúar 2014Fyrsta sala
45.500.000 kr.441 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Vatnsstígur 16-18

101 Reykjavík
99.900.000 kr.969 þ./m²
Fjölbýlishús1 svefn · 1 bað
Byggingarár2008TegundFjölbýlishúsStærð103,1 m²Herbergi2InngangurSameiginlegurBílskúrFasteignanúmerF22978414Fasteignamat115.000.000 kr.Brunabótamat67.040.000 kr.
Skráð hjá
Eignamiðlun
HeimilisfangGrensásvegi 11, 108 ReykjavíkSími588-9090

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 30 myndir

Upp ↑