1 af 25
Um eignina
Eignamiðlun kynnir:
Björt og vel skipulögð 4ra herbergja íbúð á 4. og efstu hæð við Safamýri 46, Reykjavík ásamt bílskúr. Birt stærð eignar samkvæmt fasteignaskrá: Íbúð 107,7 fm og bílskúr 20,5, samtals 128,2 fm.Íbúðin telur, rúmgóða stofu, eldhús með góðum borðkrók, 3 svefnherbergi, baðherbergil auk sérgeymslu í kjallara
Nánari lýsing:
Komið er inn parketlagt anddyri eða skála.
Rúmgóð stofa/borðstofa með stórum gluggum. Dúkalögð. Úr stofu útgengt út á góðar svalir.
Eldhúsið er rúmgott með hvítri eldri innréttingu. Bakarofn og helluborð. Flísar á milli efri og neðri skápa. Dúkalagt.
Svefnherbergi íbúðar eru þrjú.
Hjónaherbergið er mjög rúmgott með útgengi á svalir. Eldri fataskápar. Dúkalagt.
Tvö barnaherbergi, bæði parketlögð. Annað þeirra rúmgott.
Baðherbergið var endurnýjað fyrir nokkrum árum. Flísar á gólfi. Vegghengt salerni. Sturtuklefi og hvít innrétting undir handlaug og speglaskápur fyrir ofan innréttingu.
Íbúðinni fylgir 20.5 fm bílskúr í lengju. Bílskúrshurð hefur verið endurnýjuð.
Hér er um að ræða vel skipulagða eign í fjölbýlishúsi miðsvæðis á höfuðborgarsvæðinu í vinsælu hverfi þar sem öll helsta þjónusta er í næsta nágrenni. Skólar á öllum stigum eru nærri og stutt í íþróttastarf.
Viðhald að utan og í sameign samkvæmt upplýsingum frá húsfélagi og eiganda:
2019 – Viðgerðir á austurhlið. Skipt um alla glugga, múrviðgerðir og blettað. Skipt um svalahurðir.
2020 – Frárennsli lagað og dren yfirfarið. Skipt um lagnir að hluta en aðrar fóðraðar. Brunnar endurnýjaðir.
2022 – Vesturhlið viðgerð. Skipt um alla glugga, múrviðgerðir og blettamálun eftir þörfum.
2022 – Settar upp hleðslustöðvar frá Ísorku í sameign á bílaplani. Gengið frá grunnkerfi fyrir hraðhleðslustöðvar í bílskúrum.
Nánari upplýsingar veitir:
Unnar Kjartansson, löggiltur fasteignasali í síma 867-0968 eða unnar@eignamidlun.is
***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum.
Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Heimasíða Eignamiðlunar
Eignamiðlun á Facebook
Safamýri 46
108 Reykjavík
73.900.000 kr.576 þ./m²
Fjölbýlishús3 svefn · 1 bað
Byggingarár1964TegundFjölbýlishúsStærð128,2 m²Herbergi4InngangurSameiginlegurBílskúrJáFasteignanúmerF20147894Fasteignamat82.500.000 kr.Brunabótamat59.080.000 kr.
Staðsetning
Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál
Allar 25 myndir
Upp ↑























