fasteignasölur.is
Ásbraut 13
Opið hús 14. sept. kl. 17:00–17:20
1 af 24

Um eignina

Fasteignasalan TORG kynnir til sölu vel skipulagða fjögurra herbergja íbúð á rólegum og góðum stað, miðsvæðis í Kópavogi við Ásbraut 13. Eignin er skráð 102 fm og skiptist í þrjú svefnherbergi, eldhús, stofu, baðherbergi, þvottahús, búr og geymslu. Allar nánari upplýsingar og bókun skoðunar veitir Ragnar fasteignasali í s: 844-6516 eða ragnar@fstorg.is

Nánari lýsing:  Gengið er inn um aðalinngang fjölbýlishússins og niður hálfa hæð í íbúðina sem er sú eina á hæðinni. Hægt er að ganga inn í íbúðina um inngang í hjólageymslu beint frá götu en þá eru engar tröppur inní íbúð. Komið er inní forstofuhol, við hlið inngangs til vinstri er geymsla með hillum og snögum fyrir föt. Eldhús er með upprunalegri innréttingu með góðu skápaplássi og borðkróki, innaf eldhúsi er þvottahús og búr með góðum hillumGluggi er í þvottahúsinu. Stofan er björt og rúmgóð en góðir suðurgluggar hleypa birtu inní alrýmið, þaðan er útgengi á sérafnotareit sem snýr til suðurs.
Þrjú svefnherbergi eru í íbúðinni. Baðherbergið er snyrtilegt með flísum á gólfi og veggjum, baðkari með sturtuaðstöðu og innréttingu með handlaug.  Íbúðinni fylgir geymsla undir stiga sem er til móts við inngang inní íbúðina. Í snyrtilegri sameign er hjóla og vagnageymsla.
     
Ragnar Guðmundsson, löggiltur fasteignasali, í síma 844-6516 eða í tölvupósti: ragnar@fstorg.is 

Verðsaga

1 þinglýstur kaupsamningur
Í sölu núnaÁsett verð · Fasteignasalan TORG
66.900.000 kr.656 þ./m²
+14,4% á 3 árum
3. júlí 2023Fyrsta sala
58.500.000 kr.574 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Ásbraut 13

200 Kópavogur
66.900.000 kr.656 þ./m²
Fjölbýlishús3 svefn · 1 bað
Byggingarár1966TegundFjölbýlishúsStærð102 m²Herbergi4InngangurSameiginlegurFasteignanúmerF205853130Fasteignamat68.100.000 kr.Brunabótamat48.250.000 kr.
Skráð hjá
Fasteignasalan TORG
HeimilisfangGarðatorgi 5, 210 GarðabæSími520-9595

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 24 myndir

Upp ↑