fasteignasölur.is
Sunnubraut 15
1 af 31

Um eignina


PRODOMO fasteignasala kynnir í einkasölu einbýlishús við Sunnubraut 15, samtals 157,6 fm og þar af er bílskúr 36,8 fm. Um er að ræða timburhús byggt 1973, þrjú svefnherbergi, stofa/borðstofa, eldhús, baðherbergi, gestasalerni og bílskúr.

*** Endurnýjað þak 2019
*** Endurnýjaðir gluggar og hurðar 2019
*** Endurnýjað eldhús
*** Endurnýjað baðherbergi
*** Allt innbú fylgir með


Nánari lýsing:
Forstofa hefur flísalagt gólf og fataskáp.
Gestasnyrting hefur flísar á gólfi, salerni og handlaug. Nýlega voru veggir glæddir.
Stofa / borðstofa hefur parket á gólfi. Stórir suðurgluggar veita rýminu góða birtu og skapa notalegt alrými.
Eldhús hefur vínil flísar á gólfi og falleg, nýleg innrétting. helluborð með háfi, bakstursofn og örbylgjuofn í vinnuhæð ásamt innbyggðri uppþvottavél og tvöföldum Samsung ísskáp sem fylgir með.
Þvottahús er rúmgott með máluðu gólfi og útgönguhurð út á baklóð. Nýleg Samsung tæki sem geta fylgt með.
Þrjú svefnherbergi, fataskápar í öllum og dúkur á gólfum..
Baðherbergi flísalagt í hólf og gólf. Walk-in sturt með glerþili, innrétting með handlaug, handklæðaofn og gluggi.
Stór bílskúr með rafmagni og köldu vatni.

Lóðin er einstaklega snyrtileg og vel hirt. Baklóð sem snýr til norðurs er tyrfð, líkt og framlóð sem er í afar góðu viðhaldi. Á framlóð er góður sólpallur með skjólveggjum sem snýr til suðurs.
Rúmgott malarlagt bílaplan, steypt stétt liggur að aðalinngangi og á lóðinni er góður sólpallur með skjólveggjum. Lóðin er stór og afgirt og frábært sjávarútsýni.


Allar nánari upplýsingar veita:

Hákon Ó. Hákonarson 
Löggiltur fasteignasali 
420-4030 / 899-1298 
hakon@prodomo.is

Lilja Valþórsdóttir
Löggiltur fasteignasali 
420-4030 / 860-6886 
lilja@prodomo.is 



Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. PRODOMO fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlitið er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
* Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga ( 0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut ) og 1,6% fyrir lögaðila.
* Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
* Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
* Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.



 

Verðsaga

3 þinglýstir kaupsamningar
Í sölu núnaÁsett verð · PRODOMO ehf
77.900.000 kr.494 þ./m²
+6,9% á 1 ári
6. mars 2026Þinglýstur kaupsamningur
72.900.000 kr.463 þ./m²
+135,2% á 6 árum
6. ágúst 2020Þinglýstur kaupsamningur
31.000.000 kr.197 þ./m²
+26,5% á 3 árum
30. maí 2017Fyrsta sala
24.500.000 kr.155 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Sunnubraut 15

250 Garður
77.900.000 kr.494 þ./m²
Einbýlishús
Byggingarár1973TegundEinbýlishúsStærð157,6 m²Herbergi4BílskúrFasteignanúmerF20957429Fasteignamat65.050.000 kr.Brunabótamat74.450.000 kr.
Skráð hjá
PRODOMO ehf
HeimilisfangHafnargötu 15, 230 ReykjanesbæSími420-4030

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 31 myndir

Upp ↑