fasteignasölur.is
Gnoðarvogur 74
1 af 32

Um eignina

Eignamiðlun kynnir:

Eignamiðlun og Rögnvaldur Örn Jónsson löggiltur fasteignasali kynna fallega 4ja herbergja íbúð á efstu hæð í Gnoðarvogi 74.  Mjög gott útsýni er úr íbúðinni til allra átta og er með stórar þaksvalir sem snúa í suður og austur.
Eignin er afar vel staðsett í fallegu og grónu hverfi þar sem stutt er í alla þjónustu ss. verslun, heilsugæslu, grunnskóla, menntaskóla og leikskóla.


Íbúðin er 90,4 fm auk 4,6 fm geymslu á jarðhæð. Gengið er inn á 2. hæð og því eru einungis tveir stigapallar að íbúðinni.  
Aukin lofthæð er í íbúðinni að hluta. Svartar hurðir innan íbúðar. Fallegt parket á gólfi. Skápur er fyrir framan útidyrahurð á stigagangi.
Leigutekjur frá íbúð í kjallara ganga upp í hússjóð. Sameiginlegt þvottahús á jarðhæð.

Smelltu hér til að sækja söluyfirlit.

Eignin skiptist í: Tvö svefnherbergi, baðherbergi, borðstofu/stofu, sjónvarpshol, þvottahús/geymslu og afar stórar svalir.

Nánari lýsing:
Stofa/borðstofa: Björt og opin, parket á gólfi.
Sjónvarpshol: Gráar flísar á gólfi, útgengi út á svalir.
Eldhús: Parket á gólfi, svört innrétting með viðar borðplötu, gott skápapláss, útsýni í tvær áttir. 
Baðherbergi: Flísar á gólfi og veggjum, nýleg viðarlituð innrétting með svartri borðplötu, baðkar með sturtu.
Hjónaherbergi: Rúmgott, parket á gólfi, stór nýlegur skápur, útgengt á svalir.
Svefnherbergi: Rúmgott, parket á gólfi.
Svefnherbergi: Parket á gólfi, sett var tengi fyrir þvottavél og þurrkara og er nú nýtt sem þvottahús.
Geymsla: 4,6 fm á jarðhæð.  
 
Viðhald síðustu ár:
- Nýlegar svalahurðir og ný eldvarnarhurð inní íbúð.
- Nýleg innrétting að hluta inni á baði, nýlegur vaskur og salerni ásamt flísum á gólfi.
- Nýlegur sólbekkur inni í hjónaherbergi ásamt nýjum fataskáp.
- Húsið var múrviðgert og málað á norður, suður og austurhlið 2024.
- Þak yfirfarið og málað 2019.
- Ofnalagnir endurnýjaðar innan íbúðar.
- Nýlegur þakdúkur á svölum.
- Nýleg borðplata í eldhúsi.
- Búið að endurnýja alla glugga í íbúðinni fyrir utan í tveim svefnherbergjum.
- Skólp fóðrað frá húsi útí götu 2026

Nánari lýsing eignarinnar:
Nánari upplýsingar veitir Rögnvaldur Örn Jónsson Löggiltur fasteignasali, í síma 6603452, tölvupóstur rognvaldur@eignamidlun.is eða skrifstofa Eignamiðlunar í síma 588-9090

***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum. 

Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.

Heimasíða Eignamiðlunar

Eignamiðlun á Facebook

Verðsaga

2 þinglýstir kaupsamningar
Í sölu núnaÁsett verð · Eignamiðlun
84.900.000 kr.894 þ./m²
+12,6% á 3 árum
21. september 2023Þinglýstur kaupsamningur
75.400.000 kr.794 þ./m²
+83,9% á 5 árum
18. janúar 2019Fyrsta sala
41.000.000 kr.432 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Gnoðarvogur 74

104 Reykjavík
84.900.000 kr.894 þ./m²
Fjölbýlishús2 svefn · 1 bað
Byggingarár1959TegundFjölbýlishúsStærð95 m²Herbergi4FasteignanúmerF202313412Fasteignamat75.400.000 kr.Brunabótamat52.250.000 kr.
Skráð hjá
Eignamiðlun
HeimilisfangGrensásvegi 11, 108 ReykjavíkSími588-9090

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 32 myndir

Upp ↑