fasteignasölur.is
Hjallabrún 2
Opið hús 12. sept. kl. 13:00–14:00
1 af 35

Um eignina

CROISETTE kynnir í einkasölu einstaklega fallegt parhús á einni hæð ásamt bílskúr við Hjallabrún 2 í Hveragerði. Eignin er samtals 146,5 fm og skiptist í forstofu, stórt alrými með fallegu eldhúsi, stofu og borðstofu og aukinni lofthæð, tvö rúmgóð svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús og bílskúr. Stór sólpallur er við húsið og er lóðin og bílaplanið fullfrágengin.
Einstaklega vönduð og falleg eign þar sem ekkert er til sparað í frágangi og gæðum og efnisval er í hæsta gæðaflokki. Allar nánari upplýsingar veita Elín Auður Traustadóttir löggiltur fasteignasali í s: 858-0978 eða elin@croisette.is og Styrmir Bjartur Karlsson löggiltur fasteignasali í s: 899-9090 eða styrmir@croisette.is


SMELLTU HÉR TIL AÐ FÁ SENT SÖLUYFIRLIT

Nánari lýsing:
Forstofa: Komið inn í bjarta forstofu með fatahengi. Frá forstofu er stór og bjartur gangur sem tengir rými hússins.
Stofa og borðstofa: Stofa og borðstofa eru í opnu rými með eldhúsi. Mikil lofthæð. Gengið er út á sólpall frá stofu. Gegnheil fura á gólfi. 
Eldhús: Falleg hvít innrétting með eldhúseyju sem hægt er að sitja við. Ofn, helluborð, innbyggður kæliskápur og innbyggð uppþvottavél. Marmari á borðum. Gegnheil fura á gólfi.
Svefnherbergi I: Stórt og bjart svefnherbergi með fataskáp. Gegnheil fura á gólfi. 
Svefnherbergi II: Bjart og rúmgott svefnherbergi með fataskáp. Gegnheil fura á gólfi.
Baðherbergi: Bjart og rúmgott baðherbergi. Falleg hvít innrétting með vaski, stór spegill ofan við innréttingu, upphengt salerni, frístandandi baðkar, flísalögð sturta, fallegar hvítar flísar á veggjum og marmari á gólfi.  
Þvottahús: Þvottahús er framan við bílskúrinn. Góð innrétting með vaski og tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Gegnheil fura á gólfi.
Bílskúr: Bílskúrinn er 23,3 fm að stærð  með bílskúrshurð með rafmagnsopnarar. Bílskúrinn er í dag innréttaður sem vinnustofa. Gegnheil fura á gólfi.

Sólpallurinn er afgirtur með heitum potti. Garður er tyrfður með fallegum gróðri. Bílaplan er hellulagt með snjóbræðslu.
Gólfhiti er í allri eigninni. Gólfefni eru gegnheil fura og marmari á gólfi baðherbergis. 

Mjög björt og falleg eign sem lætur engan ósnortinn. Eign í algjörum sérflokki í Hveragerði.

Allar nánari upplýsingar veita:
Elín Auður Traustadóttir löggiltur fasteignasali í s: 858-0978 eða elin@croisette.is
Styrmir Bjartur Karlsson löggiltur fasteignasali í s: 899-9090 eða styrmir@croisette.is

Eignin Hjallabrún 2 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 236-6508, birt stærð 146.5 fm.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Croisette home fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
 - Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
 - Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
 - Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
 - Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
 - Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af væntanlegu brunabótamati, þegar það er lagt á.

 

Verðsaga

1 þinglýstur kaupsamningur
Í sölu núnaÁsett verð · Croisette Iceland ehf
Tilboð
8. ágúst 2019Fyrsta sala
35.000.000 kr.239 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Hjallabrún 2

810 Hveragerði
Tilboð
Rað-/parhús2 svefn · 1 bað
Byggingarár2019TegundRað-/parhúsStærð146,5 m²Herbergi4InngangurSérinngangurBílskúrFasteignanúmerF23665082Fasteignamat92.250.000 kr.Brunabótamat76.230.000 kr.
Skráð hjá
Croisette Iceland ehf
HeimilisfangKirkjuteigur 21, 105 RvíkSími569-9090

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 35 myndir

Upp ↑