fasteignasölur.is
Úlfarsbraut 104A
1 af 33

Um eignina

Gimli fasteignasala og Sigþór Bragason Löggiltur fasteigna, fyrirtækja og skipasali S 899 9787  kynna: Ein af glæsilegri íbúðum Úlfarsárdals. Rúmgóð 116,5 fm 3ja-4ra herbergja eign með sérinngangi á 2.hæð (efstu) í litlu fjölbýli.  Húsið stendur á jaðarlóð í botngötu við ána Korpu. Nýlegt hús byggt 2022. Íbúðin er teiknuð 4ra herbergja en nýtt sem 3ja herb í dag og auðvelt að bæta við herbergi. Falleg eign með meiri lofthæð.  Mögulegt er að fá eignina afhenta með stuttum fyrirvara.

Anddyri, stórir fataskápar er ná að lofti og parket á gólfi.
Alrými, parketlagt rými miðsvæðis í eigninni.
Svefnherbergi 1 mjög stórt með miklu skápaplássi, parkelögðu gólfi og tveimur gluggum.
Svefnherbergi 2, gott barnaherbergi með fataskápum og parketlögðiu gólfi.
Á teikningum er herberg 3 á milli stofu og forstofu, í dag er þetta opið og nýtt sem stærri stofa. Auðveld er að bæta við herberginu,
Baðherbergið  sérlega rúmgott og glæsilegt, flísalagt gólf og að hluta veggir. Handklæðaofn, Upphengt salerni með innbyggðum vatnskassa. Walk in sturt með gler skilrúmi. Inn á baðinu er þvottaaðstaða með tækjum i vinnuhæð og miklu skápaplássi í kring.
Eldhús með stórri inréttingu með miklu skápaplássi og eyju með helluborði, stein borðplötu.
Stofan er samliggjandi við eldhúsið, stórir bjartir gluggar með útsýni yfir Úlfarsárdalinn og Korpu. Falleg viðarbrennslu Kamína er í stofunni. Mjög góð lofthæð.
Svalir, rúmgóðar sólríkar suðvestur svalir með miklu útsýni, aftan við húsið er óspillt náttúran og örstutt í árbakka Korpu.  
Geymsla, sér 13 m² geymsla  er á jarðhæð.
Bílastæði, sérmerkt stæði með rafhleðslustöð. Einnig er fjöldi gestastæða handan við götuna

Lofthæð, þar sem íbúiðin er á efstu hæð er meiri lofthæð en í öðrum íbúðum.

Staðsetning er frábær innarlega í rólegri botngötu sem er neðsta gatan og liggur að óbyggðu svæði, göngustígum og að Korpu. Skjólsæll og sólríkur staður. Fallegar gönguleiðir og mikil náttúra í næsta nágrenni. Sundlaug og skólar og íþróttasvæði í göngufæri.

Virkilega falleg og rúmgóð eign með staðsetningu eins og best verður á kosið.

Nánari upplýsingar veitir Sigþór Bragason, Löggiltur fasteigna, fyrirtækja og skipasali, í síma 899 9787, eða sendu fyrirspurn með tölvupósti á sb@gimli.is 



 

Gimli fasteignasala leggur áherslu á traust, áreiðanleika og góða þjónustu.

Það er okkar trú að það skipti öllu máli í fasteignaviðskiptum að viðskiptavinurinn fái trausta og góða þjónustu. Við hjá Gimli höfum stundað fasteignaviðskipti með farsælum hætti í meira en fjóra áratugi. Hjá okkur starfa sérhæfðir og reyndir fasteignasalar sem sinna stórum sem smáum verkefnum af nákvæmni og þekkingu sem skilar árangri.

Hvar erum við?
Gimli Fasteignasala er staðsett á jarðhæð í Skipholti 35 í Reykjavík en einnig rekum við söluskrifstofu að Eyrarvegi 29. 2 hæð á Selfossi.

Við höfum opið frá 10-15 mánudaga til föstudaga. Sláðu á þráðinn eða líttu við hjá okkur í Skipholtinu næst þegar þú átt leið hjá. Við erum alltaf með heitt á könnunni.

Gimli gerir betur...

Verðsaga

1 þinglýstur kaupsamningur
Í sölu núnaÁsett verð · Gimli
94.900.000 kr.815 þ./m²
+10,3% á 2 árum
9. apríl 2024Fyrsta sala
86.000.000 kr.738 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Úlfarsbraut 104A

113 Reykjavík
94.900.000 kr.815 þ./m²
Fjölbýlishús2 svefn · 1 bað
Byggingarár2022TegundFjölbýlishúsStærð116,5 m²Herbergi4InngangurSérinngangurFasteignanúmerF25217135Fasteignamat83.200.000 kr.Brunabótamat81.650.000 kr.
Skráð hjá
Gimli
HeimilisfangSkipholt, 35 Rvk. - Eyravegur 29, Selfoss, 105 Reykjavík - 800 SelfossSími570-4800

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 33 myndir

Upp ↑