fasteignasölur.is
Lynggata 1
1 af 27

Um eignina

Eignamiðlun kynnir:

Virkilega falleg og björt 2ja herbergja íbúð á 4. hæð (efstu) í vel staðsettu og góðu lyftuhúsi framarlega í Urriðaholtinu. Aukin lofthæð er í íbúðinni og góðar suðursvalir.
Íbúðin er skráð 71,2 fm og skiptist í stofu/borðstofu, eldhús, svefnherbergi, baðherbergi með þvottaaðstöðu og 7,3 fm geymslu í sameign.


Nánari lýsing:
Forstofa: Gengið er inn úr snyrtilegri sameign og inn í bjart alrými íbúðarinnar. Tvöfaldur fataskápur.
Stofa: Rúmgóð og björt í opnu rými með eldhúsi og útgengi á góðar suðursvalir. Parket á gólfi.
Eldhús: Falleg hvít Nobilia innrétting með góðu skápa- og vinnuplássi, innbyggðum ísskáp og uppþvottavél. Parket á gólfi.
Baðherbergi: Snyrtilegt með walk in sturtu, upphengdu salerni, handklæðaofni og þvottaaðstöðu. Speglaskápur og innrétting með góðum skúffum. Flísar á gólfi og hluta veggja.
Svefnherbergi: Rúmgott og bjart með stórum fataskáp. Parket á gólfi.
Geymsla: 7,3 fm geymsla á jarðhæð.

Snyrtileg sameign með hjóla- og vagnageymslu. Næg bílastæði framan við hús.
Húsið er byggt af ÞG verk árið 2018 og er klætt með ál- og tréklæðningum sem tryggir lágmarks viðhald hússins. Innréttingar eru af vandaðri gerð frá GKS innréttingum, framleiddar af Nobilia.

Frábær staðsetning í góðu og eftirsóttu hverfi þar sem stutt er í alla helstu þjónustu og verslanir, skóla, leikskóla og falleg útivistarsvæði.


Nánari upplýsingar veita:
Alfreð Valencia, löggiltur fasteignasali í síma: 776-2150 eða alfred@eignamidlun.is
Oddný María Kristinsdóttir, löggiltur fasteignasali, í síma 777-3711 eða á oddny@eignamidlun.is

***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum. 

Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.

Heimasíða Eignamiðlunar

Eignamiðlun á Facebook

Verðsaga

1 þinglýstur kaupsamningur
Í sölu núnaÁsett verð · Eignamiðlun
66.900.000 kr.940 þ./m²
+83,3% á 9 árum
11. janúar 2018Fyrsta sala
36.500.000 kr.513 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Lynggata 1

210 Garðabær
66.900.000 kr.940 þ./m²
Fjölbýlishús1 svefn · 1 bað
Byggingarár2018TegundFjölbýlishúsStærð71,2 m²Herbergi2InngangurSameiginlegurLyftaFasteignanúmerF236270110Fasteignamat66.950.000 kr.Brunabótamat44.050.000 kr.
Skráð hjá
Eignamiðlun
HeimilisfangGrensásvegi 11, 108 ReykjavíkSími588-9090

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 27 myndir

Upp ↑