fasteignasölur.is
Háberg 24
Opið hús í dag kl. 17:15–17:45
1 af 28

Um eignina

Borg fasteignasala kynnir: Vel skipulögð 5 herbergja parhús á tveimur hæðum með sérinngangi og skjólgóðum garði með sólpalli. Eignin er skráð 143,5 fm. Eignin hefur verið endurnýjuð að hluta á síðustu mánuðum.

Nánari lýsing:
Neðri hæð
Forstofa:
Nýlega flísalögð forstofa með góðu rými fyrir fatahengi
Stofa / borðstofa: Björt og rúmgóð stofa/borðstofa í opnu rými með harðparketi
Eldhús: Eldhús með góðu skápaplássi og vinnufleti
Svefnherbergi: Tvö rúmgóð svefnherbergi á neðri hæð með harðparketi
Baðherbergi: Stílhrein innrétting með vaski, handklæðaskáp, upphengdu salerni, baðkari með sturtu og áföstu gleri og handklæðaofni. Flísar á gólfi og hluta veggja. 
Stigi / milligangur: Stigi er með harðparketi
Garður / útirými: Útgengi frá stofu út á skjólgóðan og afgirtan garð með sólpalli. Garðurinn hefur verið snyrtur og býður upp á gott útisvæði.
Geymsla: Geymsluskúr framan við húsið með tengingu fyrir þvottavél  og þurrkara

Efri hæð
Svefnherbergi: Tvö svefnherbergi á efri hæð með harðparketi
Baðherbergi: Stílhrein innrétting með vaski, handklæðaskáp, upphengdu salerni, "walk in" sturtu og handklæðaofni. Flísar á gólfi og hluta veggja. 

Framkvæmdir skv. seljanda síðustu mánuði:
- Nýtt parket lagt á alla eignina
- Íbúðin nýmáluð að innan
- Forstofa flísalögð
- Eldhús endurnýjað að hluta
- Baðherbergin endurnýjuð að mestu leyti (yfirborð, innréttingar og búnaður)
- Allar hurðir á svefnherbergjum endurnýjaðar
- Ofnar á 1. hæð endurnýjaðir
- Skipt um dúk undir þaki
- Skipt um þrjá glugga í stofu á neðri hæð
- Bílaplan framan við húsið endurnýjað að hluta
- Garður og útisvæði snyrt

Samkvæmt seljanda er ekkert starfandi húsfélag.

Stutt er í alla helstu þjónustu á svæðinu, þar á meðal grunn- og framhaldsskóla, heilsugæslu og sundlaug.

Nánari upplýsingar veitir:
Díana Thanh Andradóttir, aðstoðamaður fasteignasala, í síma 868-0146, tölvupóstur diana@fastborg.is
Victor Levi R. Ferrua, löggiltur fasteignasali, í síma: 868-2222, tölvupóstur victor@fastborg.is 

Forsendur söluyfirlits: 

Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 

Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Borg fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af fasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi.
3. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

 

Verðsaga

2 þinglýstir kaupsamningar
Í sölu núnaÁsett verð · Borg Fasteignasala
93.500.000 kr.652 þ./m²
+6,3% á 1 ári
27. nóvember 2025Þinglýstur kaupsamningur
88.000.000 kr.613 þ./m²
+87,2% á 5 árum
14. apríl 2021Fyrsta sala
47.000.000 kr.328 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Háberg 24

111 Reykjavík
93.500.000 kr.652 þ./m²
Rað-/parhús4 svefn · 2 bað
Byggingarár1979TegundRað-/parhúsStærð143,5 m²Herbergi5InngangurSérinngangurFasteignanúmerF20509768Fasteignamat93.200.000 kr.Brunabótamat78.400.000 kr.
Skráð hjá
Borg Fasteignasala
HeimilisfangSíðumúli 23, 108 ReykjavíkSími519-5500

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 28 myndir

Upp ↑