fasteignasölur.is
Heiðarból 63
1 af 40

Um eignina

PRODOMO fasteignasala kynnir í einkasölu fallegt fimm til sex herbergja einbýlishús að Heiðarbóli 63 í Keflavík.
Frábær staðsetning við rólega botnlangagötu þar sem skóli og leikskóli er í næsta nágrenni.

Nánari lýsing:
Forstofa
með flísum á gólfi.
Forstofuherbergi með parketi á gólfi.
Gestasalerni með flísum á gólfi og veggjum að hluta.
Sjónvarpshol með flísum á gólfi. Þaðan er útgengt á baklóð.
Eldhús með flísum á gólfi. Stílhrein innrétting með stein á borðumþ Gott skápa og vinnupláss. Inn af eldhúsi er gott búr.
Stofa og borðstofa með parketi á gólfum. Þar er aukin lofthæð.
Herbergisgangur með parketi á gólfi.
Hjónaherbergi með parketi á gólfi, inn af því er lítið fataherbergi. Útgengt er á baklóð frá hjónaherbergi.
Barnaherbergin voru tvö en búið er að opna á milli þeirra. Auðvelt er að breyta því aftur.
Baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum. Eldri innrétting og niðurgrafið bað með sturtuaðstöðu.
Þvottahús með flisum á gólfi. Góð innrétting þar sem gert er ráð fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð.
Bílskúr er skráður 47 fm. Epoxy á gólfi. Búið er að gera herbergi í hluta skúrs, þar er teppi á gólfi.

Innkeyrsla er steypt. Á baklóð hússins er góð verönd með heitum potti og skjólveggjum. Einnig er geymslukofi á baklóð. Steypt loftaplata er yfir húsinu að mestu og þar er gott háaloft.  Járn á þaki hefur verið endurnýjað. Ofnar endurnýjaðir að hluta ásamt því að búið er að endurnýja gler að hluta. Forhitari á kerfi. Eir lagnir.

Allar nánari upplýsingar veita Lilja Valþórsdóttir Löggiltur fasteignasali í síma 420-4030 / 860-6886 eða lilja@prodomo.is og Hákon Ó. Hákonarsson Löggiltur fasteignasali í síma 420-4030 / 899-1298 eða hakon@prodomo.is

​​​​​​Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. PRODOMO fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlitið er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
* Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
* Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
* Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
* Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Heiðarból 63

230 Reykjanesbær
129.900.000 kr.595 þ./m²
Einbýlishús4 svefn · 2 bað
Byggingarár1981TegundEinbýlishúsStærð218,5 m²Herbergi5InngangurMargir inngangarBílskúrFasteignanúmerF20885348Fasteignamat112.850.000 kr.Brunabótamat122.250.000 kr.
Skráð hjá
PRODOMO ehf
HeimilisfangHafnargötu 15, 230 ReykjanesbæSími420-4030

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 40 myndir

Upp ↑