fasteignasölur.is
Laufengi 108
1 af 23

Um eignina

Smelltu hér Vertu tilbúin(n) þegar rétta eignin birtist – Fáðu tilboð í söluferlið -  Skráðu eignina þína í dag og tryggðu þér forskotið.

*

ALLT fasteignasala kynnir í einkasölu eignina: Laufengi 108, 112 Reykjavík, birt stærð 74.5 fm.
Um er að ræða bjarta og vel skipulagða tveggja herbergja íbúð á jarðhæð, með sérinngangi og sérgarði sem snýr til suðausturs.
Skipulag eignarinnar er hagkvæmt og gott. Eignin skiptist í forstofu, eldhús, rúmgóða stofu og borðstofu, svefnherbergi, baðherbergi með tengjum fyrir þvottavél og þurrkara ásamt sérgeymslu. Sérmerkt bílastæði fylgir eigninni.

Nánari upplýsingar veitir/veita: Sigurjón Rúnarsson Löggiltur fasteignasali, í síma 7719820, tölvupóstur sigurjon@allt.is.
 
Nánari lýsing eignar:
Sérinngangur er inn í rúmgott anddyri með flísum á gólfi, fataskáp og fatahengi.
Stofa og borðstofa eru bjartar og rúmgóðar, með parketi á gólfi og góðu flæði inn í eldhúsið. Úr stofu er gengið út á verönd og í sérgarð sem snýr til suðausturs.
Eldhús er opið inn í borðstofu og er með hvítri innréttingu, eldavél með keramikhelluborði, tengi fyrir uppþvottavél og plássi fyrir ísskáp.
Svefnherbergið er rúmgott, með parketi á gólfi og góðum fataskáp.
Baðherbergið er rúmgott og með sturtuklefa, innréttingu og tengjum fyrir þvottavél og þurrkara.
Sér geymsla í sameign ásamt hjólageymslu, auk þess sem eigninni fylgir sérmerkt bílastæði.

Eignin er vel staðsett á besta stað í Grafarvogi þar sem stutt er í fallegar gönguleiðir, Egilshöll, skóla-og leiksskóla, golfvöll og aðra þjónustu.

Vertu tilbúin(n) þegar rétta eignin birtist – skráðu eignina þín í dag og tryggðu þér forskotið.

ALLT fasteignasala er staðsett á eftirfarandi stöðum:
Hafnargötu 62, 230 Reykjanesbæ - Reykjavíkurveg 66, 220 Hafnarfirði
 
Kostnaður kaupanda:
1. Af gjaldskyldum skjölum skal greiða 0,8% af fasteignamati ef kaupandi er einstaklingur, fyrstukaupendur 0,4% og 1,6% af fasteignamati ef kaupandi er lögaðili.
2. Þinglýsingargjald á hvert skjal er kr. 3.800.
3. Lántökugjald fer eftir verðskrá lánastofnunar hverju sinni.
4. Umsýslugjald til ALLT fasteignasölu er kr. 69.440 m/vsk.
5. Sé um nýbyggingu um að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.

Skoðunar- og aðgæsluskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. ALLT fasteignasala vill beina því til væntanlegs kaupanda að kynna sér ástand fasteignar vel við skoðun og fyrir tilboðsgerð. Ef þurfa þykir er ráðlagt að leita til sérfræðifróðra aðila. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit þetta er samið af fasteignasala til samræmis við lög um sölu fasteigna og skipa nr. 70/2015. Upplýsingar þær sem koma fram í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, frá seljanda og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eignina til samræmis við upplýsingaskyldu sína sbr. lög um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteignar sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki með berum augum, eins og t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
 

Smelltu hér Vertu tilbúin(n) þegar rétta eignin birtist – Fáðu tilboð í söluferlið -  Skráðu eignina þína í dag og tryggðu þér forskotið.

Verðsaga

2 þinglýstir kaupsamningar
Í sölu núnaÁsett verð · ALLT fasteignasala
59.900.000 kr.804 þ./m²
+18,6% á 3 árum
6. október 2023Þinglýstur kaupsamningur
50.500.000 kr.678 þ./m²
+195,3% á 11 árum
30. nóvember 2012Fyrsta sala
17.100.000 kr.230 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Laufengi 108

112 Reykjavík
59.900.000 kr.804 þ./m²
Fjölbýlishús1 svefn · 1 bað
Byggingarár1992TegundFjölbýlishúsStærð74,5 m²Herbergi2InngangurSérinngangurFasteignanúmerF20395542Fasteignamat57.050.000 kr.Brunabótamat37.900.000 kr.
Skráð hjá
ALLT fasteignasala
HeimilisfangReykjanesbær - Mosfellsbær - Grindavík, 240Sími560-5500

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 23 myndir

Upp ↑