fasteignasölur.is
Búðartangi 4
1 af 100

Um eignina

Fasteignasalan TORG kynnir: Glæsilegt einbýlishús á tveimur hæðum við Búðartanga 4 Hrísey. Eignin er skráð  skv fmr 129,3fm. Húsið stendur á besta stað í eyjunni, beint í suður sem skapar einstök veðurskilyrði á veröndinni aftan við húsið. Allar nánari upplýsingar veitir Hafdís Rafnsdóttir löggiltur fasteignasali gsm 820-2222 eða hafdis@fstorg.is
Nánari lýsing: Forstofa: Komið er inn í forstofu og þaðan er hægt að ganga inn á rúmgóða snyrtingu með sturtu. Þegar úr forstofunni er komið er þvottahús til vinstri handar og stórt svefnherbergi beint af augum. Eldhús, stofa og borðstofa eru í opnu rými. Eldhúsið er með vandaðri ALNO innréttingu. Úr eldhúsinu er hurð út á grillpall. Í stofunni eru gluggar á allar hliðar og svalahurð út á stóra verönd með dásamlegu sjávarútsýni. 
Stór lóð er aftan við húsið, girt með hvítu grindverki með hliði bæði framan við húsið og aftan þar sem hægt er að ganga niður í fjöru. Á pallinum er nýr hitaveitupottur sem kveikt er á með sjálfvirkri stýringu í stóru geymslurými sem er fast við húsið.
Efri hæð: Á efri hæðinni eru tvö svefnherbergi, hjónaherbergi og mjög stórt herbergi með þremur rúmum. Tveir kvistir í austur og vestur gera efri hæðina afar bjarta og opna, með útsýni til Grenivíkur og Dalvíkur. Sjávarmegin uppi er mjög stór stofa þar sem nú er sófasett, leikherbergi og lítið skrifborð en er líka hægt að nota sem svefnrými. Baðherbergi með sturtu er á efri hæð hússins.Úr glugganum á efri hæð er útsýni út á hafið og hægt að fylgjast með bátum og snekkjum sem sigla hjá og oft má sjá hnísur að leik. Sjón er sögu ríkari! Allar nánari upplýsingar veitir Hafdís Rafnsdóttir löggiltur fasteignasali gsm 820-2222 eða hafdis@fstorg.is
 

Verðsaga

1 þinglýstur kaupsamningur
Í sölu núnaÁsett verð · Fasteignasalan TORG
99.900.000 kr.773 þ./m²
+602,2% á 19 árum
22. júní 2007Fyrsta sala
14.227.000 kr.110 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Búðartangi 4

630 Hrísey
99.900.000 kr.773 þ./m²
Einbýlishús3 svefn · 2 bað
Byggingarár2007TegundEinbýlishúsStærð129,3 m²Herbergi5InngangurSérinngangurFasteignanúmerF22991838Fasteignamat37.350.000 kr.Brunabótamat71.100.000 kr.
Skráð hjá
Fasteignasalan TORG
HeimilisfangGarðatorgi 5, 210 GarðabæSími520-9595

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 100 myndir

Upp ↑