fasteignasölur.is
Vefarastræti 40
1 af 27

Um eignina

Fasteignasalan TORG kynnir: Fallega og bjarta endaíbúð með sérinngangi, verönd og stæði í lokaðri bílageymslu á mjög fjölskylduvænum stað, Vefarastræti 40. Um er ræða fjögurra herbergja íbúð á 1. hæð sem er skráð skv fmr 97,8fm og þar af er 5,5 fm geymsla í sameign og sér bílastæði í bílageymslu. Staðsetningin er  í suðurhlíðum Helgafells á skjólgóðum og sólríkum stað. Vefarastræti 40 er eins og önnur fjölbýlishús í hverfinu, skipulagt innan svokallaðs auga sem dregur nafn sitt af lögun svæðisins og liggur nálægt miðju hverfisins. Skipulag hverfisins er nútímalegt og mjög fjölskylduvænt, með góðum grunnskóla og tveimur leikskólum. Allar nánari upplýsingar veitir Hafdís Rafnsdóttir löggiltur fasteignasali gsm 820-2222 eða hafdis@fstorg.is

Nánari lýsing: Forstofa: komið er inn um sérinngang inn í forstofu með flísum á gólfi og góðum fataskáp. Rennihurð aðskilur forstofu frá aðalrými. Frá forstofu er komið inná gang og þar er tvöfaldur fataskápur.
Eldhús: eldhús eignarinnar er með ljósri innréttingu og ljósum borðplötum. Uppþvottavél er innbyggð og bakaraofn undir helluborði og háfur yfir. Harðparket er á gólfi og gott pláss fyrir borðstofuborð. Frá eldhúsi er gengið út á hellulagðan sérafnotareit.
Stofa: stofan er samliggjandi eldhúsi með gólfsíðum glugga og harðparketi á gólfi.
Svefnherbergi: herbergin eru þrjú öll eru með harðparketi á gólfi og góðum fataskápum.
Baðherbergi: Á baðherberginu er baðkar með sturtuaðstöðu, flísar eru á gólfi og veggjum að hluta, ljós innrétting með ágætis skápaplássi og í opnum skáp er pláss fyrir þvottavél og þurrkara. Handklæðaofn og gólfhiti er á baðherberginu.
Geymsla: í sameign er sér geymsla sem fylgir eigninni og er skráð skv fmr 5,5fm.
Sameign: í sameign er sér bílastæði í lokaðri bílageymslu  Búið er að draga í rafmagn fyrir hleðslustöð við stæðið. Sameiginleg hjóla og vagna geymsla er í sameign.
Niðurlag: þetta er virkilega björt og falleg íbúð á mjög fjölskylduvænum og fallegum stað, rétt við Helgafellsskóla. Stutt er í almenningssamgöngur og vinsæl útivistarsvæði. Allar nánari upplýsingar veitir Hafdís Rafnsdóttir löggiltur fasteignasali gsm 820-2222 eða hafdis@fstorg.is








 

Verðsaga

1 þinglýstur kaupsamningur
Í sölu núnaÁsett verð · Fasteignasalan TORG
80.900.000 kr.827 þ./m²
+72,1% á 6 árum
26. ágúst 2020Fyrsta sala
47.000.000 kr.481 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Vefarastræti 40

270 Mosfellsbær
80.900.000 kr.827 þ./m²
Fjölbýlishús3 svefn · 1 bað
Byggingarár2018TegundFjölbýlishúsStærð97,8 m²Herbergi4InngangurSérinngangurBílskúrFasteignanúmerF23664482Fasteignamat75.000.000 kr.Brunabótamat73.220.000 kr.
Skráð hjá
Fasteignasalan TORG
HeimilisfangGarðatorgi 5, 210 GarðabæSími520-9595

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 27 myndir

Upp ↑