fasteignasölur.is
Álakvísl 122
Opið hús 12. sept. kl. 12:00–12:30
1 af 39

Um eignina

Fasteignasalan TORG kynnir : 
Mjög falleg og mikið endurnýjuð 115,1fm 4-5 herbergja enda íbúð á 2 & 3 hæð ásamt 30,5fm stæði í lokaðri bílageymslu samtals : 145,6fm. Sérinngangur, suður svalir. Fallegur útskotsgluggi út frá stofu. Eignin skiptist í : forstofu, hol, eldhús, stofu, borðstofu, gestasalerni, þrjú herbergi, baðherbergi, geymslu, geymslu ris ásamt stæði í bílageymslu. Mjög góð staðsetning í rótgrónu hverfi með Ártúnsskóla í göngufæri, sem er bæði leik- og grunnskóli, og leikskóla. Stutt er í Elliðaárdalinn og góðar hjólaleiðir til og frá hverfinu. Einnig er stutt í fjölbreytta þjónustu, verslun og ýmsa veitingastaði í nágrenninu. Nánari upplýsingar veitir Helgi Jónsson Löggiltur fasteignasali í síma : 780-2700 eða Helgi@fstorg.is


NÁNARI LÝSING : 
Komið er inn um sér inngang í forstofu með fataskáp, flísar á gólfi. Glæsilegt eldhús með hvítri innréttingu, innbyggður ísskápur og uppþvottavél, stór borðkrókur, parket á gólfi. Rúmgóð og björt stofa með útskotsglugga, parket á gólfi, útgengt út á suður svalir. Gestasalerni með upphengdu salerni, innrétting við vask, flísar á gólfi. Gólfhiti er í allri hæðini. Sér smíðaður stál stigi upp á efri hæðina. Hol með parketi á gólfi. Hjónaherbergi með skápum, parket á gólfi. Annað rúmgott herbergi með parketi á gólfi. Þriðja herbergið er aðeins minna og með parketi á gólfi. Baðherbergi með sturtuklefa, innréttingu við vask, upphengt salerni, flísar á gólfi og veggjum að hluta. Frá holi er lúgustigi upp í mjög rúmgott geymsluris. Algengt er að þetta rými sé breytt í herbergi. Eigninni fylgir stæði í lokaðri bílageymslu, einnig er sér geymsla (ekki inn í fm.tölu íbúðar) í bílageymsluni.

Hús og íbúð :
2018 - Baðherbergi á efri hæð endurnýjað. 2019 - Svalahurð endurnýjuð. 2020 - Útihurð endurnýjuð og húsið málað að utan, múrviðgerðir þar sem þurfti. Farið yfir timberverk og það málað. Lýsing utanhúss endurnýjuð ásamt húsnúmerum og lýsing sett í stiga. 2022 - Nýr sólskáli. 2023-2024 - Aðalhæð endurnýjuð, nýtt eldhús, gólfefni ásamt því að settur var upp nýr stálstigi á milli hæða. 2024 - Svalir endurnýjaðar. 2025 - Þakjárn og þakgluggar endurnýjaðir. Efri hæð tekin í gegn og skipt var um gólfefni og innihurðir. 2026 - Uppsetning girðingar milli lóða.


Bílakjallari:
2019 - Gluggar endurnýjaðir. 2020 - Útsogskerfi yfirfarið og lagfært, Úttekt á loftræsingu mtt loftunar og upphitunar í bílgeymslu gerð af verkfræðistofu
2021 - Innkeyrsluhurð endurnýjuð. 2022 - Rafhleðslukerfi sett upp í kjallara af N1 (uppsett bakplata fyrir hleðslustöð).


Allar nánari upplýsingar veitir Helgi Jónsson Löggiltur fasteignasali í síma : 780-2700 eða á Helgi@fstorg.is


 

Álakvísl 122

110 Reykjavík
105.900.000 kr.727 þ./m²
Fjölbýlishús3 svefn · 2 bað
Byggingarár1987TegundFjölbýlishúsStærð145,6 m²Herbergi4InngangurSérinngangurBílskúrFasteignanúmerF2043614Fasteignamat86.250.000 kr.Brunabótamat59.790.000 kr.
Skráð hjá
Fasteignasalan TORG
HeimilisfangGarðatorgi 5, 210 GarðabæSími520-9595

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 39 myndir

Upp ↑