fasteignasölur.is
Kuggavogur 4
1 af 19

Um eignina

Nýleg og glæsileg íbúð við Kuggavog 4 í Vogabyggð, 104 Reykjavík.

Íbúð 101: Er 77,3 fermetra 2ja herbergja íbúð á fyrstu hæð með svölum. Þar af er geymsla 15,4 fermetrar og bílastæði í bílakjallara. 

Gildandi fasteignamat 2026 er kr. 68.450.000-.

Nánari lýsing: Íbúðin skiptist í forstofu/þvottarými, eldhús við opið alrými/stofu, svefnherbergi og baðherbergi. Útgengi á svalir úr stofu.
Innréttingar: Í eldhúsum og baðherbergjum eru frá þýska framleiðandanum Nobilia og fataskápar frá GKS smíðaverkstæði. Lýsing undir efri skápum í eldhúsum. Speglaskápar eru á aðalbaðherbergjum. 
Eldhústæki: Íbúðunum eru vönduð eldhústæki af gerðinni AEG.
Íbúðin er með span helluborði, innbyggðum kæliskáp, innbyggðri uppþvottavél, blástursofni.
Hreinlætistæki: Salernisskál er vegghengd með innbyggðum vatnskassa. Sturtur eru með flísalögðum botni og hertu sturtugleri. Hreinlætistæki eru frá Grohe, hitastýrð eða einnar handar.

Nánari upplýsingar og bókaðu skoðun:
Hrafnkell P. H. Pálmason Löggiltur fasteignasali, í síma 690 8236, tölvupóstur hrafnkell@fastlind.is.

Vogabyggð er skjólsæl perla á höfuðborgarsvæðinu í nálægð við hafið og náttúruna.
Frábær kostur fyrir þá sem kjósa að búa í umhverfi sem býður bæði upp á borgarbrag og í senn sterka tengingu við náttúruna. Hjóla- og göngustígar liggja meðfram ströndinni sem og upp í Elliðaárdal. Þá er Laugardalurinn innan seilingar.

Innangengt er úr bílakjallara í lyftu- og stigahús. 
Húsið er steinsteypt og útveggir einangraðir að utan, klæddir með báru-álklæðningum eða sléttum-álklæðningum sem tryggir lágmarks viðhald húsanna. Gluggar eru ál/tré kerfi og glerjaðir með K-gleri. Innveggir aðrir en steyptir eru úr hleðslusteini.


Lind fasteignasala ehf kynnir eignina Kuggavogur 4, 104 Reykjavík, nánar tiltekið eign merkt 01-01, fastanúmer 251-6617 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.
Eignin Kuggavogur 4 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 251-6617, birt stærð 77.3 fm.


-----------------------------------------------------------------------
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila 
    Fyrstu kaup - 0,4% af heildarfasteignamati
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.

Verðsaga

1 þinglýstur kaupsamningur
Í sölu núnaÁsett verð · Lind fasteignasala ehf.
64.400.000 kr.833 þ./m²
+3,0% á 3 árum
7. nóvember 2023Fyrsta sala
62.500.000 kr.809 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Kuggavogur 4

104 Reykjavík
64.400.000 kr.833 þ./m²
Fjölbýlishús1 svefn · 1 bað
Byggingarár2023TegundFjölbýlishúsStærð77,3 m²Herbergi2InngangurTveir inngangarBílskúrLyftaFasteignanúmerF251661747Fasteignamat68.450.000 kr.Brunabótamat54.270.000 kr.
Skráð hjá
Lind fasteignasala ehf.
HeimilisfangBæjarlind 4, 201 KópavogurSími510-7900

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 19 myndir

Upp ↑