Um eignina
PERLA – HÚS Á SPÁNI Í 20 ÁR.
Perla Investments kynnir: Hágæða parhús í Santa Rosalía
Fallegt einbýlishús/parhús við vatnið í Santa Rosalia Lake and Life Resort á Costa Cálida. Húsið er staðsett á frábærum stað með fallegu útsýni yfir lónið og stutt er í alla þjónustu svæðisins, þar á meðal strandklúbb, golfvelli, veitingastaði og verslanir.
Húsið er 217 fm á 300 fm lóð og skiptist á tvær hæðir ásamt fullbúnum kjallara. Þar eru þrjú rúmgóð svefnherbergi, þrjú baðherbergi og gestasalerni. Björt stofa og borðstofa tengjast útisvæðinu á fallegan hátt og skapa gott rými fyrir fjölskyldu og gesti.
Á lóðinni er einkasundlaug með fossi, góðir sólpallar og notaleg setuaðstaða. Á þakinu er stór sólpallur með útieldhúsi og fallegu útsýni yfir vatnið. Húsið er afhent með fullbúnu eldhúsi, heimilistækjum, loftræstingu, rafdrifnum gluggahlerum í svefnherbergjum, LED-lýsingu og yfirbyggðu bílastæði.
Santa Rosalia Lake and Life Resort er lokað og vaktað íbúðasvæði með stóru lóni, sandströndum, göngu- og hjólaleiðum, tennis- og padelvöllum, strandklúbbi og fjölbreyttri afþreyingu. Þetta er frábært tækifæri fyrir þá sem vilja njóta þægilegs lífs í sólinni á eftirsóttum stað á Costa Cálida.
Vertu velkomin að hafa samband til að fá frekari upplýsingar um þessa glæsilegu eign.
Þú finnur þessa eign inn á heimasíðu okkar á https://perlainvest.com/eign/7450/hagaeda-parhus-i-santa-rosalia/
Ref: NB-45623
Fylgdu okkur á Facebook -www.facebook.com/Perlainvest
Kynntu þér svæðið, kaupferlið á Spáni og mikið úrval hágæða eigna á www.perlainvest.com eða sendu okkur línu á info@perlainvest.com . Allar upplýsingar eru veitar í síma 8933911 eða 0034-654832793.
Bjóðum einnig uppá á leiguþjónustu. Kynntu þér málið nánar á https://perlaholidays.com/ic/
Vertu velkomin í sérsniðna, allt að 7 daga, skoðunarferð til Spánar með flugi og gistingu. Hafðu samband til að fá frekari upplýsingar með því að senda fyrirspurn á info@perlainvest.com
Perla Inv.- Hágæða parhús í Santa Rosalía
Allar 16 myndir
Upp ↑














