fasteignasölur.is
Perla Inv. - Einstakt einbýli í vínræktarhéraði
1 af 30

Um eignina

PERLA – HÚS Á SPÁNI Í 20 ÁR.

Perla Investments kynnir :  Einstakt einbýli í vínræktarhéraði

 

Hugsaðu STÓRKOSTLEG NÁTTÚRA  – VÍNRÆKT – og EKTA SPÆNSK MENNING!

Þetta og miklu meira býður þín í hinum einstaka bæ Calasparra sem er að finna í fjöllunum í norður Múrcia héraði.

Þar sem við bjóðum upp á einstakt tækifæri til að eignast glæsilegt einbýlishús á einstöku verði. Sú eign sem um ræðir er 102,25m2 að stærð, með 3 svefnherbergjum og 2 baðherbergjum, auk þess að státa af stórum 343m2 garði með sundlaug, 74,6m2 útiverönd sem og einkabílastæði á lóð.

Húsið er afhent fullbúið með heimilistækjum.

Í sama hverfi bjóðum jafnframt uppá svipuð einbýlishús með 2 svefnherbergjum.

Í næsta nágrenni er að finna alla nauðsynlega þjónustu og afþreyingu, þar sem finna má mikið úrval veitingahúsa, matvöruverslana o.fl.

Það sem gerir þessa eign einstaka er ekki síst staðsetning hennar, en hana er að finna í einu fallegasta náttúrusvæði Spánar. Hér ertu í miðju vínræktunarhéraði, umvafin stórkostlegu fjallendi, í hjarta rótgróinnar spænskrar menningar.

Ef þú hefur áhuga á útivist s.s. göngum í fallegri náttúru, fljótasiglingum, að skoða minjar frá forsögulegum tíma o.fl þá er þetta staðurinn fyrir þig. Hér ertu í hjarta spænskrar menningar og aldrei verið auðveldara að læra tungumálið meðal innfæddra!

Ekki láta þetta frábæra tækifæri til að eignast glæsilegt einbýli á einstökum stað renna þér úr greipum.

 

Hafðu samband til að fá frekari upplýsingar!

 

Þú finnur þessa eign inn á heimasíðu okkar á https://perlainvest.com/eign/7356/einbyli-i-vinraektarheradi-calasparra/

Ref: NB-21990-21990

Fylgdu okkur á Facebook -www.facebook.com/Perlainvest 

Kynntu þér svæðið, kaupferlið á Spáni og mikið úrval hágæða eigna á www.perlainvest.com eða sendu okkur línu á info@perlainvest.com .  Allar upplýsingar eru veitar í síma 8933911 eða 0034-654832793.

Vertu velkomin í sérsniðna, allt að 7 daga, skoðunarferð til Spánar með flugi og gistingu. Hafðu samband til að fá frekari upplýsingar með því að senda fyrirspurn á info@perlainvest.com 

Perla Inv. - Einstakt einbýli í vínræktarhéraði

1053 Spánn - Costa Blanca
50.900.000 kr.435 þ./m²
Einbýlishús3 svefn · 2 bað
Byggingarár2026TegundEinbýlishúsStærð117 m²Herbergi4FasteignanúmerF0
Skráð hjá
HeimilisfangC.C. Los Dolses nº 142, Villamartin, Orihuela Cost, 03189Sími893-3911

Allar 30 myndir

Upp ↑