fasteignasölur.is
Krosshamrar 7
1 af 35

Um eignina

Hallgrímur Hólmsteinsson löggiltur fasteignasali og Trausti fasteignasala kynna með stolti Krosshamra 7A í Grafarvogi, fallegt parhús á einni hæð með bílskúr á góðum og rólegum stað í lokuðum botnlanga. Húsið og garðurinn eru afar snyrtileg og hefur verið haldið vel við. Tveimur herbergjum hefur verið breytt með að taka niður vegg og er nú eitt en auðvelt er að breyta því til baka. Stórt geymsluloft er fyrir ofan herbergi og gang.

Húsið er samtals 133,7 fm samkvæmt skráningu hjá HMS, og er bílskúrinn 22,8 fm þar af. 

Allar nánari upplýsingar veitir Hallgrímur Hólmsteinsson löggiltur fasteignasali í síma 896-6020 eða með tölvupósti á hallgrimur@trausti.is, og Kristján Baldursson löggiltur fasteignasali með tölvupósti á kristjan@trausti.is. 

Nánari lýsing eignar.:

Komið er inn á flísalagt anddyri með fatahengi
Þaðan er komið inn í sameiginlegt alrými stofu, borðstofu og eldhúss. Parket er á stofum en flísar á eldhúsi. Stofurnar eru bjartar og rúmgóðar. 
Í eldhúsi er snyrtileg og falleg hvít innrétting. 
Inn af eldhúsinu er rúmgott þvottahús og búr eða geymsla 
Úr stofu gengur sólskáli og þaðan er útgengt út í garðinn, flísar á gólfi. 
Hjónaherbergi er stórt og rúmgott og með góðum fataskápum.
Barnaherbergið er eitt en var áður tvö, búið er að taka niður vegg á milli herbergjanna og er það stórt og rúmgott og notað sem skrifstofa í dag. 
Stórt geymsluloft er fyrir ofan herbergi og gang.
Baðherbergið er flísalagt í hólf og gólf með baðkari með sturtuaðstöðu. 
Bílskúr sem tilheyrir húsinu stendur á lóðarmörkum aðeins frá húsinu. Hann er með rafdrifinni hurð og er snyrtilegur með góða lofthæð. 
Garðurinn snýr í suður og er vel gróinn, hellulagt pláss er við hurð í sólstofuna. 
Bílastæði fyrir tvo bíla er við innganginn á húsinu.

Hér er virkilega falleg og vel með farin eign á góðum stað í hinu vinsæla Hamrahverfi í Grafarvogi. Rólegur lokaður botnlangi og stutt í skóla, verslanir og þjónustu. Sjón er sögu ríkar, hafið samband við Hallgrím Hólmsteinsson löggiltan fasteignasala í síma 896-6020 eða með tölvupósti á hallgrimur@trausti.is eða Kristján Baldursson löggiltan fasteignasala með tölvupósti á kristjan@trausti.is

Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 

Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

Krosshamrar 7

112 Reykjavík
119.500.000 kr.894 þ./m²
Rað-/parhús3 svefn · 1 bað
Byggingarár1987TegundRað-/parhúsStærð133,7 m²Herbergi4BílskúrFasteignanúmerF20386303Fasteignamat103.950.000 kr.Brunabótamat77.180.000 kr.
Skráð hjá
Trausti fasteignasala
HeimilisfangVegmúli 4, 108 ReykjavíkSími546-5050

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 35 myndir

Upp ↑