fasteignasölur.is
Pálsbúð 20
1 af 56

Um eignina

Guðbergur og fasteignasalan Bær kynna: Glæsilegt einbýlishús 190 fm 2-3 svefnherbergi(einu var breytt í sjónvarpsherbergi) tveggja bíla bílskúr, fallegt umhverfi og opið svæði fyrir aftan húsið.

Nánari lýsing: Glæsilegt hús á frábærum og rólegum stað í Þorlákshöfn. Anddyri með flísum á gólfi, fataskáp og hurð inn í bílskúr. Inn af anddyri er gestasnyrting með innréttingu og upphengdu klósetti. Forstofa með flísum á gólfi.
Sjónvarpsherbergi, rúmgott(sem hægt er að gera að svefnherbergi)með flísum á gólfi. Rúmgóð og björt stofa með parket á gólfi og útgengi út á sólpall og þaðan út í garð. Eldhús fullbúið tækjum, mikið skápapláss, eyja og flísar á gólfi.
Svefnherbergin eru 2 með parket á gólfum og bæði með fataskáp. Baðherbergi mjög rúmgott, innrétting, sturta, upphengt klósett og handklæðaofn. Gott þvottaherbergi með flísum á gólfi, innréttingu, skolvask, tengi fyrir þvottavél og þurkara og útgengi á sólpall.
Geymsla er inn af þvottaherbergi. Rúmgóður tveggja bíla bílskúr með flísum á gólfi. Góðir sólpallar, heitur pottur og opið útivistar svæði fyrir aftan húsið.

Falleg eign á góðum stað, stutt í alla þjónustu, svo sem íþróttir, skóla og verslanir.
sjón er sögu ríkari.


Allar nánari upplýsingar veitir Guðbergur Guðbergsson löggiltur fasteignasali s 8936001  beggi@fasteignasalan.is

Verðsaga

1 þinglýstur kaupsamningur
Í sölu núnaÁsett verð · Fasteignasalan Bær
109.000.000 kr.573 þ./m²
+101,9% á 7 árum
16. janúar 2020Fyrsta sala
54.000.000 kr.284 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Pálsbúð 20

815 Þorlákshöfn
109.000.000 kr.573 þ./m²
Einbýlishús2 svefn · 2 bað
Byggingarár2007TegundEinbýlishúsStærð190,1 m²Herbergi4InngangurSérinngangurFasteignanúmerF23090283Fasteignamat90.300.000 kr.Brunabótamat103.500.000 kr.
Skráð hjá
Fasteignasalan Bær
HeimilisfangSkútuvogur 10F, 104 ReykjavíkSími512-3400

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 56 myndir

Upp ↑