fasteignasölur.is
Grandavegur 42F
1 af 26

Um eignina

Borg fasteignasala kynnir:
Einstök 2ja herbergja íbúð með tveimur baðherbergjum, glæsilegum sólskála, stórum suðursvölum og stæði í lokaðri bílgeymslu. EIgnin er á þriðju (efstu) hæð í lyftuhúsi. Skráð alls 89,9 fm. 
Glæsileg  og vel skipulögð  89,9 fm íbúð, þar sem auk þess nýtist um 20 fm flísalagður sólskáli, sem ekki er skráður í birtum fermetrum eignarinnar. Sólskálinn tengir saman íbúðina og rúmgóðar um 20 fm suður-svalir.  7,4 fm sér geymsla fylgir eigninni. 
Hér er
myndband af eigninni. 

Eignin skiptist í: forstofu, gestasalerni, eldhús, stofu og borðstofu í opnu alrými, rúmgott svefnherbergi með fataherbergi og sér baðherbergi, sérgeymslu, sameiginlega hjóla- og vagnageymslu ásamt sérmerktu stæði í lokaðri bílgeymslu.
Komið er inn í forstofu með góðum fataskápum. Gestasalerni er inn af forstofu og þar er  þvottaaðstaða með skápum fyrir þvottavél og þurrkara.
Eldhúsið er glæsilegt með vönduðum innréttingum úr ljósri eik og hvítum skápum. Innbyggður ísskápur og uppþvottavél fylgja með.
Stofa og borðstofa mynda rúmgott og einstaklega bjart alrými með stórum gluggum. Þaðan er gengið út í fallegan flísalagðan sólskála sem nýtist sem frábær viðbót við íbúðina stóran hluta ársins. Frá sólskálanum er útgengt á rúmgóðar suðursvalir með fallegu útsýni og góðri aðstöðu.
Svefnherbergið er rúmgott með fataherbergi og inn af því er glæsilegt baðherbergi með sturtu, upphengdu salerni og fallegri innréttingu.
Ljóst parket er á öllum meginrýmum en flísar á baðherbergjum.
Hér er um að ræða afar glæsilega eign þar sem birtan, stóra alrýmið, sólskálinn, rúmgóðar svalir, tvö baðherbergi og stæði í lokaðri bílgeymslu mynda einstaka heild á eftirsóttum stað í vesturbænum. 

Allar nánari upplýsingar veitir:
Úlfar Þór Davíðsson, löggiltur fasteignasali, í síma 788 9030, ulfar@fastborg.is



 

Verðsaga

2 þinglýstir kaupsamningar
Í sölu núnaÁsett verð · Borg Fasteignasala
89.900.000 kr.1000 þ./m²
+22,3% á 3 árum
3. apríl 2023Þinglýstur kaupsamningur
73.500.000 kr.818 þ./m²
+47,3% á 7 árum
1. september 2016Fyrsta sala
49.900.000 kr.555 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Grandavegur 42F

107 Reykjavík
89.900.000 kr.1.000 þ./m²
Fjölbýlishús1 svefn · 2 bað
Byggingarár2016TegundFjölbýlishúsStærð89,9 m²Herbergi2BílskúrLyftaFasteignanúmerF23530082Fasteignamat92.350.000 kr.Brunabótamat68.080.000 kr.
Skráð hjá
Borg Fasteignasala
HeimilisfangSíðumúli 23, 108 ReykjavíkSími519-5500

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 26 myndir

Upp ↑