fasteignasölur.is
Dalsbraut 3 (106)
1 af 34

Um eignina

Valný fasteignasala og Valgeir Leifur Vilhjálmsson löggiltur fasteignasali kynna:

Dalsbraut 3, íbúð 106, 260 Reykjanesbær

Fjögurra herbergja endaíbúð á fyrstu hæð með sérinngangi. Eignin skiptist í þrjú svefnherbergi, eldhús og stofu í opnu og björtu alrými, baðherbergi með þvottaaðstöðu og sérgeymslu. Frá stofu er útgengt á 37,2 m² sérafnotaflöt til suðvesturs, afgirtan með skjólveggjum. Flöturinn er hellulagður að hluta og með grasflöt. Sameiginlegar hleðslustöðvar fyrir rafbíla eru á lóðinni.

Smelltu hér til að fá söluyfirlit.
Bókaðu skoðun hér - Sýnum samdægurs!


Samkvæmt fasteignaskrá HMS er eignin skráð samtals 101,1 m². Þar af er íbúðarrými 96,4 m², merkt 02-0106, og sérgeymsla 4,7 m², merkt 02-0118. Fastanúmer eignarinnar er F2502252. Húsið er byggt árið 2019. Eigninni fylgja tilheyrandi lóðar- og sameignarréttindi.

Lýsing og skipulag eignar:
Forstofa
er flísalögð og með fataskáp við inngang.
Eldhús er með ljósri innréttingu og góðu skápa- og vinnuplássi. Innbyggður bakaraofn, helluborð og uppþvottavél eru í innréttingu og vaskur er undir glugga.
Stofa og borðstofa eru í opnu alrými með eldhúsi. Stórir gluggar eru í rýminu og frá stofu er útgengt á sérafnotaflöt eignarinnar.
Hjónaherbergi er með rúmgóðum fataskápum.
Tvö svefnherbergi eru til viðbótar og eru fataskápar í báðum.
Baðherbergi er flísalagt á gólfi og veggjum að hluta. Þar er innrétting með handlaug, speglaskápur, upphengt salerni, handklæðaofn og sturta með glerþili. Þvottaaðstaða er á baðherberginu.
Plastparket er á meginrýmum og svefnherbergjum en flísar eru á forstofu og baðherbergi.

Verönd og sérafnotaflötur: Eigninni fylgir 37,2 m² sérafnotaflötur til suðvesturs. Svæðið er afgirt með timburskjólveggjum og skiptist í hellulagðan hluta við húsið og grasflöt.

Byggingarlýsing: Húsið er þriggja hæða steinsteypt fjölbýlishús, byggt árið 2019. Útveggir eru einangraðir að utan og klæddir með sléttri málmklæðningu. Gluggar eru úr timbri með tvöföldu K-gleri. Þakið er steinsteypt, einangrað og frágengið með þakdúk. Húsið er hitað með hefðbundnu ofnakerfi.

Lóð og aðkoma: Húsið stendur á sameiginlegri leigulóð. Sameiginlegar hleðslustöðvar fyrir rafbíla hafa verið settar upp við húsið.

Allar nánari upplýsingar veitir:
Valgeir Leifur / Löggiltur fasteignasali / 780-2575 / valgeir@valny.is


Ertu að leita að nýbyggingum? Skoðaðu úrvalið hjá Valný –
smelltu hér.
Ertu að hugsa um að selja? Smelltu hér og fáðu frítt verðmat.
Ekki missa af draumaeigninni – fylgstu með okkur á Instagram og Facebook
Lestu reynslusögur frá ánægðum viðskiptavinum okkar.


- Fasteignasalan sem opnar dyrnar að þinni eign.

Valný fasteignasala | www.valny.is | Reykjanesvegi 40, 260 Reykjanesbær | Opið alla virka daga frá 9:00-16:00

Dalsbraut 3 (106)

260 Njarðvík
66.900.000 kr.662 þ./m²
Fjölbýlishús3 svefn · 1 bað
Byggingarár2019TegundFjölbýlishúsStærð101,1 m²Herbergi4InngangurSérinngangurFasteignanúmerF25022524Fasteignamat64.200.000 kr.Brunabótamat56.900.000 kr.
Skráð hjá
Valný fasteignasala
HeimilisfangReykjanesvegur 40, 260 ReykjanesbæSími780-2575

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 34 myndir

Upp ↑