fasteignasölur.is
Almannadalur 13
1 af 33

Um eignina

Elka lgf. s. 863-8813 og Fasteignasalan TORG kynnir óvenju vandað og sjarmerandi hesthús með 3ja herbergja íbúð á efri hæð.  
Á neðri hæð er allt að 12 hesta hesthús með salernis- og kaffiaðstöðu og hlöðu en einni stíunni hefur verið breytt í geymslu. 
Á efri hæð er 64 fm íbúð með suður svölum. Steypt stétt austan, sunnan og vestan við húsið og aðkoma öll hin snyrtilegasta.  Sérgerði fyrir aftan hús.
Seljendur skoða uppítöku á minni eig, td sumarbústaði.
Allar nánari upplýsingar veitir Elka Guðmundsdóttir, Löggiltur fasteignasali í síma : 863-8813 eða á elka@fstorg.is

Nánari lýsing:
Af snyrtilegri stétt og bílastæði er gengið inní flísalagða forstofu sem skilur vel af hesthús og íbúð. 
Forstofan er flísalögð með dökkum flísum, þar er fatahengi og góðar lokaðar dyr annarsvegar inní hesthúsið og hinsvegar upp í íbúðina. 
Stiginn upp í íbúðina er steyptur og flísalagður með handriði. 
Góðir gluggar eru bæði í forstofu og stigahúsi.  Þegar komið er upp er baðherbergi á móti stiga. 
Baðherbergið er vandað og smekklegt undir súð með velux glugga, dökkum steinflísum á gólfi og á hluta veggja og í sturtuklefa.  Fallegar innréttingar eru í baðherbergi og tengi fyrir þvottavél. Góð geymsla undir súð.
Á stigapalli eru skápar og hurð inní íbúðina.  Tvö svefnherbergi er í íbúðinni, minna herbergið er töluvert undir súð með velux glugga.
Aðalrými íbúðarinnar er bjart og opið rými með svölum til suðurs.  Eldhúsið er opið inní stofu og borðstofu með fallegri innréttingu. 
Stofan og borðstofan er björt og falleg með útsýni til austurs og vesturs og svölum til suðurs. 
Sömu dökku flísarnar eru á stofugólfum og á öðrum gólfum íbúðarinnar. Gólfhiti er bæði í íbúð og hesthúsi. 

Hesthúsið er með sex 2ja hesta stíum með steyptum frontum og ryðfríu stáli með rauðu innréttingaplasti í hurðum og flekum.
Einni stíunni hefur verið breytt í geymslu en auðvelt er að breyta því til baka. Hnakkageymsla með lítilli innréttingu og klósetti.
Tvær innkeyrsluhurðir eru á hesthúsinu og hægt að vélmoka húsið.  Breiður fóðurgangur.  Hlaða með innkeyrsludyrum.
Úti er sérgerði og steyptar stéttir austan, sunnan og vestan við húsið. Bílaplan fyrir framan húsið og stéttin utan við hesthúsið eru með snjóbræðslu
Virkilega vandað hús og fallegur frágangur á öllu.
-- húsið er skráð sem hesthús, ekki er hægt að taka íbúðarlán á eignina -- 

Allar nánari upplýsingar veitir Elka Guðmundsdóttir, Löggiltur fasteignasali í síma : 863-8813 eða á elka@fstorg.is

 

Verðsaga

1 þinglýstur kaupsamningur
Í sölu núnaÁsett verð · Fasteignasalan TORG
71.900.000 kr.431 þ./m²
+24,0% á 5 árum
4. nóvember 2021Fyrsta sala
58.000.000 kr.348 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Almannadalur 13

161 Reykjavík
71.900.000 kr.431 þ./m²
Hesthús2 svefn · 2 bað
Byggingarár2009TegundHesthúsStærð166,9 m²InngangurSérinngangurFasteignanúmerF230327913Fasteignamat45.210.000 kr.Brunabótamat71.850.000 kr.
Skráð hjá
Fasteignasalan TORG
HeimilisfangGarðatorgi 5, 210 GarðabæSími520-9595

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 33 myndir

Upp ↑