fasteignasölur.is
Blómvangur 16
Opið hús á morgun kl. 17:00–17:30
1 af 47

Um eignina

Pálsson Fasteignasala kynnir:

Falleg og vel skipulögð 6 herbergja efri sérhæð í reisulegu tvíbýlishúsi á vinsælum stað í Norðurbæ Hafnarfjarðar. Nálægt allri helstu þjónustu á borð við skóla, leikskóla og verslun. 

** 4 svefnherbergi
** Mikið endurnýjuð að innan
** Frábær staðsetning 
** Gott viðhald á húsi
 
Nánari upplýsingar veitir:

Hrafnkell Pálmarsson Lgf / MBA. í síma nr 660-1976 eða hrafnkell@palssonfasteignasala.is

www.eignavakt.is
www.verdmat.is 
Góð ráð fyrir kaupendur / seljendur

Birt stærð skv. HMS er 167,6m2, þar af bílskúr 32m2.

Eignin skiptist í anddyri, skála, 4 svefnherbergi, borðstofu, stofu, eldhús, þvottahús, baðherbergi, geymslu í kjallara og bílskúr. Geymsluloft er yfir íbúðarhlutanum.

Nánari lýsing
Anddyri er rúmgott með fatahengi.Flísar á gólfi. 
Skáli og herbergisgangur tengja saman rýmin. Parket á gólfi.
Borðstofa er með útgengi á svalir. Parket á gólfi.
Stofa er rúmgóð og björt. Parket á gólfi. 
Eldhús hefur verið endurnýjað og er með dökkri innréttingu með góðu skápaplássi, bakaraofni, innbyggðum ískáp og frysti og eyju með helluborði, 
Þvottahús er inn af eldhúsi en einnig er hurð frá anddyri. Gott vinnupláss með stæði fyrir þvottavél og þurrkara og snúrur.
Svefnherbergi I er rúmgott  með parket á gólfi.
Svefnherbergi II er rúmgott með parket á gólfi.
Svefnherbergi III er með fataskáp. Parket á gólfi.
Svefnherbergi IV er rúmgott með góðum fataskápum. Parket á gólfi.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf með hvítri innréttingu, handlaug, upphengdu salerni, baðkari og sturtu.
Sérgeymsla (ca 16m2) er í kjallara og er ekki inni í birtum fermetrafjölda. 
Geymsluloft er mjög rúmgott yfir mestum hluta íbúðar sem er með steyptri plötu og þakglugga sem hleypir birtu inn í rýmið. 
Bílskúr, 32m2, er með rafmagni, hita og vatni. Bæði gönguhurð og bílskúrshurð með rafdrifnum opnara. Lakkað gólf.

Framkvæmdir síðustu ára samkvæmt upplýsingum frá seljanda:
* 2018-2019 hús sprunguviðgert og málað
* 2019 þakjárn endurnýjað
* Gler í gluggum efri hæðar endurnýjað fyrir ca 15 árum
* Rafmagn í eigninni endurnýjað á síðustu 5 árum
* Skipt um innréttingu og sturtugler endurnýjað á baðherbergi á síðustu 5 árum

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3,800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.

Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Pálsson fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Verðsaga

1 þinglýstur kaupsamningur
Í sölu núnaÁsett verð · Pálsson fasteignasala
114.900.000 kr.686 þ./m²
+41,0% á 5 árum
19. október 2021Fyrsta sala
81.500.000 kr.486 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Blómvangur 16

220 Hafnarfjörður
114.900.000 kr.686 þ./m²
Fjölbýlishús4 svefn · 1 bað
Byggingarár1973TegundFjölbýlishúsStærð167,6 m²Herbergi6InngangurSérinngangurBílskúrFasteignanúmerF20736731Fasteignamat101.150.000 kr.Brunabótamat89.500.000 kr.
Skráð hjá
Pálsson fasteignasala
HeimilisfangEngjateigur 3, 105 RekjavíkSímiPálsson

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 47 myndir

Upp ↑