fasteignasölur.is
Hverfisgata 82
Opið hús á morgun kl. 17:00–17:30
1 af 125

Um eignina

Ragnhildur Finnbogadóttir, löggiltur fasteignasali & LIND Fasteignasala, kynna til sölu:
Fallega og bjarta tveggja herbergja íbúð á fimmtu hæð í fjölbýlishúsi, með svölum og fallegu útsýni til sjávar og fjalla.
Húsið er Sigvaldahús, teiknað af Sigvalda Thordarson arkitekt og stendur við Hverfisgötu 82, 101 Reykjavík.

-Íbúðin er laus til afhendingar við kaupsamning.

Allar nánari upplýsingar veitir:
Ragnhildur Finnbogadóttir, löggiltur fasteignasali, í síma 772-2791 eða adda@fastlind.is


Skráð stærð eignar skv. FMR er 52 fm

Eignin skiptist í:
Forstofu, svefnherbergi, eldhús, stofu og baðherbergi.

Nánari lýsing eignar:
Anddyri: harðparket á gólfi, er í opnu rými með eldhúsi.
Eldhús: dökkgrá innrétting með svartri borðplötu og spanhelluborði. Í eldhúsi er snjall bakaraofn í vinnuhæð, innbyggð uppþvottavél og ísskápur. Harðparket á gólfi.
Stofa: björt stofa með harðparketi á gólfi. 
-Úr stofu er útgengt út á flísalagðar svalir með fallegu útsýni til sjávar.
Svefnherbergi: rúmgott, með fataskáp með rennihurðum og harðparketi á gólfi.
Baðherbergi: flísalagt hólf í gólf. Hvít innrétting með vaski og spegli fyrir ofan, sturtuklefi og salerni.  
-Tengi er fyrir þvottavél inni á baðherbergi.

Viðhald á vegum húsfélags og innan íbúðar:
2022 - Múrviðgerðir, málun og þak yfirfarið. 
2023 - Gluggaskipti í svefnherbergi. Skipt um eldhúsinnréttingu og eldhústæki. Rafmagn í eldhúsi yfirfarið. Brunaveggur settur upp í sameign í kjallara. 
2024 - Svalagólf flísalagt.
2026 - Yfirstandandi framkvæmdir: Múrviðgerð í stigagangi og kjallararými. Stigagangur málaður og nýtt teppi lagt. Gólf flotað í kjallara.

Hverfisgata 82 er vel staðsett eign í hjarta miðborgar Reykjavíkur. Stutt er í alla helstu þjónustu, samgöngur og allt það sem miðborgin hefur uppá að bjóða.

Allar nánari upplýsingar veitir:
Ragnhildur Finnbogadóttir, löggiltur fasteignasali, í síma 772-2791 eða
adda@fastlind.is

-----------------------------------------------------------------------
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila 
    Fyrstu kaup - 0,4% af heildarfasteignamati
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
 

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Allar 125 myndir

Upp ↑