fasteignasölur.is
Fellsmúli 22
1 af 13

Um eignina

Björt og falleg þriggja til fjögurra herbergja endaíbúð á jarðhæð, gluggar á 3 vegu og eignin með frábærri staðsetningu. Íbúðin samanstendur af forstofu, baðherbergi, eldhúsi, stofu, þremur svefnherbergjum, verönd utan við stofuglugga, geymslu og aðgengi að sameiginlegu þvottahúsi og hjólageymslu. Birt stærð séreignar er 75,9 fm.
Laus við kaupsamning 

Nánari lýsing:
Gengið er niður einn stigapall að íbúðinni úr andyri hússins. Gengið er inn í lokað rými sem er nýtt af eigendum sem forstofa, en rýmið er partur af sameign og aðgengi að rafmagnstöflu hússins innan þess. Komið er inn í íbúðina á á vinstri hönd er baðherbergi, flísalagt í hólf og gólf, góð sturta með hengi, klósett, skápar og vaskur með skúffueiningu. Eldhúsið er mjög bjart með glugga á tvo vegu, aflangt með plássi fyrir matarborð, innrétting á gagnstæðum veggjum, flísar á milli, efri og neðri skápar, vaskur, tengi fyrir uppþvottavél og eigendur eru einnig með tengi fyrir þvottavél í eldhúsinu. Eldavél, ofn og pláss fyrir einfaldan ískáp með góðri hæð. Nýlegt parket er á gólfi eldhúss. Stofan/borðstofan er björt og rúmgóð, með stórum gluggum og parketi á gólfi. Búið er að útbúa tröppur og stórt opnanlegt fag til að komast út á snotra verönd fyrir utan gluggann sem þau nota sem sitt útisvæði. Svefnherbergin voru upphaflega tvö, mjög rúmgóð en búið er að skipta stærra herberginu upp og eru því þrjú svefnherbergi í dag, tvö þeirra með fataskápum. Sameiginlegt þvottahús og hjólageymsla er á sameign.

NÁNARI UPPLÝSINGAR.Pantið skoðun, Kristbjörn Sigurðsson lgf í síma 692-3000 | ks@midbaer.is

Verðsaga

1 þinglýstur kaupsamningur
Í sölu núnaÁsett verð · Miðbær fasteignasala
58.900.000 kr.776 þ./m²
+9,1% á 4 árum
14. september 2022Fyrsta sala
54.000.000 kr.711 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Fellsmúli 22

108 Reykjavík
58.900.000 kr.776 þ./m²
Fjölbýlishús3 svefn · 1 bað
Byggingarár1967TegundFjölbýlishúsStærð75,9 m²Herbergi3InngangurSameiginlegurFasteignanúmerF201574612Fasteignamat55.900.000 kr.Brunabótamat37.750.000 kr.
Skráð hjá
Miðbær fasteignasala
HeimilisfangStarmýri 2, 108 ReykjavíkSími588-3300

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 13 myndir

Upp ↑