fasteignasölur.is
Bæjarlind 7
1 af 39

Um eignina

LIND fasteignasala og Helga Pálsdóttir löggiltur fasteignasali kynnir virkilega fallega, vel skipulagða og  rúmgóða 127,9 m2  3ja herbergja íbúð á 3.hæð í lyftuhúsi á þessum frábæra stað við Bæjarlind 7  í Lindarhverfi Kópavogs. Eigninni fylgir stæði í bílageymslu. Tvennar svalir . Suður og austur svalir.  Eignin skiptist forstofu, forstofugang, stofu/borðstofu, eldhús, tvö svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús, og sérgeymslu í sameign.

Nánari lýsing eignar:
Forstofa með flísalögðu gólfi .
Forstofugangur með harðparketi á gólfi og fataskáp.
Eldhúsið er opið inn í stofu með vönduðum innréttingum frá AXIS með eyju, steinborðplötum og innbyggðri uppþvottavél , tveir ofnar í vinnuhæð, gert er ráð fyrir ísskáp í innréttingu, harðparket á gólfi, útgengt út á rúmgóðar svalir til austurs.
Stofa og borðstofa er opið og bjart rými með harðparketi á gólfi og útgengi út á rúmgóðar svalir til suðurs.
Baðherbergi með flísalögðu gólfi og veggjum að hluta til, walk-in sturta með glerþili, falleg innrétting frá AXIS með handlaug/vask, vegghengt salerni, opnanlegur gluggi.
Hjónaherbergið er rúmgott með harðparketi á gólfi og rúmgóðum fataskápum, útgengi út á svalir til austurs.
Svefnherbergi tvö er rúmgott með harðparketi á gólfi ( fataskápur er til en óuppsettur ) 
Þvottahús með vinnuborði og skolvaski, efri og neðri skápar og flísar á gólfi. 
Geymsla: 10,7 m2, staðsett í sameign.

Bæjarlind 7 er á einstaklega góðum stað í hjarta Lindahverfis. Í rólegu og vel skipulögðu íbúðahverfi. Í næsta nágrenni eru fallegar göngu- og hjólaleiðir. Leiksvæði og græn svæði sem gera umhverfið fjölskylduvænt og þægilegt.

Stutt er í alla helstu þjónustu; grunnskóla, leikskóla, íþróttasvæði og verslun. Smáralind og Smáratorg eru í örstuttri fjarlægð með öllu sem daglegt líf krefst.
Frábær tenging er við stofnbrautir og almenningssamgöngur, sem gerir staðsetninguna mjög hentuga fyrir bæði fjölskyldur og einstaklinga. 

Sameiginleg hjóla/vagnageymsla á jarðhæð. Allar upplýsingar um eignina veitir Helga Pálsdóttir fasteignasali í síma 822 2123 eða helga@fastlind.is


 

Verðsaga

1 þinglýstur kaupsamningur
Í sölu núnaÁsett verð · Lind fasteignasala ehf.
101.900.000 kr.797 þ./m²
+66,8% á 9 árum
19. september 2017Fyrsta sala
61.100.000 kr.478 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Bæjarlind 7

201 Kópavogur
101.900.000 kr.797 þ./m²
Fjölbýlishús2 svefn · 1 bað
Byggingarár2017TegundFjölbýlishúsStærð127,9 m²Herbergi3InngangurSameiginlegurBílskúrLyftaFasteignanúmerF23615402Fasteignamat95.250.000 kr.Brunabótamat115.260.000 kr.
Skráð hjá
Lind fasteignasala ehf.
HeimilisfangBæjarlind 4, 201 KópavogurSími510-7900

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 39 myndir

Upp ↑