fasteignasölur.is
Fiskakvísl 1
1 af 45

Um eignina

LIND fasteignasala og Helga Pálsdóttir löggiltur fasteignasali kynnir glæsilega 4-5 herbergja útsýnisíbúð á 1.hæð auk bílskúrs í fjögurra íbúða fjölbýlishúsi á vinsælum stað við Fiskakvísl  í Árbænum.

Eignin er skráð hjá HMS samtals 172,3 m2 og skiptist í íbúð á hæð 121,6 m2, herbergi í kjallara./geymsla/ útleiguherbergi (17 m2 ) og bílskúr 33,7 m2


Íbúðin skiptist í hol, þvottahús, eldhús, baðherbergi, þrjú svefnherbergi, stofu og borðstofu. Að auki er svo góð geymsla í kjallara með gluggum sem hægt er að nýta  sem herbergi.

Helstu endurbætur
* 2014 var eldhúsið endurnýjað
* 2015 var baðherbergið endurnýjað
* 2020 var skipt um þakjárn ,þakkant og settar nýjar þakrennur.
* 2021 var skipt um allar innhurðar
* 2021 var lagt vandað Pergo parket á alla íbúðina fyrir utan baðherbergi
* 2025 var skipt um stofugluggana og glugga á geymslu/herbergi.
* 2025 sett ný handrið á svalir og útistiga
* 2026 var skipt um teppi á stigagangi og hann málaður
* 2026 var öll sameign í kjallara máluð


Nánari lýsing eignar.
Hol með innbyggðum fataskáp.
þvottahús  er innaf holi með innréttingu og vaski. Tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Eldhús með með fallegri innréttingu með góðu skúffu og skápaplássi, granít borðplötu með innfeldum vaski, Bosch spanhelluborði með Elica háfi yfir og góðum sjálhreinsandi ofni frá Gorenje. Gert er ráð fyrir ísskáp og frysti i innréttingu, stór tækjaskápur með granítborðplötu, lítið eldhúsborð með granítborðplötu .borðkrókur er við útsýnisglugga.
Hjónaherbergi er með fataskáp með rwnnihurðum og útgengi er frá því út á svalirnar.
Tvö rúmgóð barnaherbergi , útgengi frá öðru herberginu út á svalir í norður með útsýni, þar sem m.a.  Esjan, Akrafjall og Skarðsheiðin blasa við. Fataskápur í örðu þeirra.
Baðherbergið er flísalagt í hólf og gólf og þar er góð walk-in sturta, upphengt salerni, innrétting og handklæðaofn.
Björt og samliggjandi stofa og borðstofa með fallegum arni. Útgengt út á stórar flísalagðar suðursvalir.
Stór sérgeymsla /herbergi /útleiguherbergi er í kjallara sem hægt er að nýta  sem herbergi, parket á gólfi og opnanlegur gluggi. Vatnsleiðslur hinum megin við vegginn sem auðvelt væri að fara i.
Stór og góður bílskúr með hita, vatni og rafmagni, sjálfvirkum hurðaopnara og innréttingu.

Bílaplanið er hellulagt með snóbræðslu.


Mjög góð staðsetning efst í Ártúnsholtinu þar sem stutt er í þjónustu af ýmsu tagi svo sem verslanir, skóla, leikskóla ofl. Allar upplýsingar um eignina veitir Helga Pálsdóttir fasteignasali í síma 822 2123 eða helga@fastlind.is

Verðsaga

3 þinglýstir kaupsamningar
Í sölu núnaÁsett verð · Lind fasteignasala ehf.
112.000.000 kr.650 þ./m²
+55,1% á 5 árum
14. apríl 2021Þinglýstur kaupsamningur
72.200.000 kr.419 þ./m²
+90,0% á 7 árum
4. apríl 2014Þinglýstur kaupsamningur
38.000.000 kr.221 þ./m²
+16,2% á 2 árum
5. janúar 2012Fyrsta sala
32.700.000 kr.190 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Fiskakvísl 1

110 Reykjavík
112.000.000 kr.650 þ./m²
Fjölbýlishús4 svefn · 1 bað
Byggingarár1983TegundFjölbýlishúsStærð172,3 m²Herbergi5InngangurSameiginlegurBílskúrFasteignanúmerF20439256Fasteignamat103.050.000 kr.Brunabótamat92.400.000 kr.
Skráð hjá
Lind fasteignasala ehf.
HeimilisfangBæjarlind 4, 201 KópavogurSími510-7900

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 45 myndir

Upp ↑