Um eignina
Nánari lýsing:
Forstofa með fataskáp og harðparketi á gólfi.
Eldhús með fallegri ljósri innréttingu með efri og neðri skápum, bakaraofn í vinnuhæð. Innbyggður ísskápur með frystihólfi og uppþvottavél fylgir.
Stofan er björt og opin inn í eldhús. Harðparket á gólfi. Gengið er út á svalir frá stofu sem snúa inn í garðinn.
Svefnherbergin er tvö með fataskápum og harðparketi á gólfi.
Baðherbergið er með innréttingu undir og yfir handlaug, sturtu, upphengdu salerni, handklæðaofni og flísum á gólfi og veggjum að mestu. Inn á baðherbergi er gert ráð fyrir þvottavél og þurrkara. Hiti er í gólfi,
Rúmgóð geymsla er í sameign 12,5 fm
Bílastæði N40 í lokuðu bílastæðahúsi.
Hjóla- og vagnageymsla er sameiginleg í kjallara.
Miðbærinn er í göngufæri og því þægilegt að fá sér stuttan göngutúr á veitingahús, söfn, tónleika, sundhöllina eða gefa öndunum á Tjörninni. Glæsileg íþróttaaðstaða Vals er við hliðina á nýju byggðinni á Hlíðarenda, frábært fyrir börn og unglinga sem koma til með að búa í húsinu. Mjölnir er svo með aðstöðu í Öskjuhlíðinni þar sem áður var keiluhöll.
Allar nánari upplýsingar gefur: Jason Kristinn Ólafsson s. 775 1515 - jason@betristofan.is löggiltur fasteignasali
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Betri Stofan fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Verðsaga
2 þinglýstir kaupsamningarHeimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.
Haukahlíð 1
Staðsetning
Allar 25 myndir
Upp ↑























