fasteignasölur.is
Iðunnarbrunnur 12
Opið hús á morgun kl. 17:00–17:30
1 af 29

Um eignina

Valhöll fasteignasala og  Gylfi Þór lögg. fasteignasali kynnir fallega 106,1 fermetra 4ra herbergja efri hæð ( tvíbýli ) við Iðunnarbrunn 12 í Reykjavík. 

Falleg og björt með gólfsíðum gluggum í flestum rýmum og stórum gluggum í stofurými. Eldhús er opið við stofu og borðstofu. Auðvelt að bæta við þriðja svefnherberginu á kostnað borðstofu og færa borðstofu inn í stofurými. Útgengi úr alrými á rúmgóðar svalir með útsýni til fjalla. . 
Bílastæði við hús og stór sameiginlegur garður.

smelltu hér til að sjá myndband af eigninni

Fallegt harðparket er á aðalrýmum og innfelld lýsing í loftum víða. Glerhandrið við stiga. Dökk eldhúsinnrétting með góðu vinnuplássi. Fallegt baðherbergi með glugga og rúmgóðri innréttingu utan um þvottavél og þurrkara.
Nánari lýsing:
Forstofa: Með flísum á gólfi og fatahengi. 
Stigagangur:  Snyrtilegur með glerhandriði og stórum gluggum.
Stofa: Er rúmgóð með harðparketi á gólfi og stórum gólfsíðum gluggum til suðvesturs og norðvesturs. Stofa er opin við eldhús.
Borðstofa: Rúmgóð með harðparketi á gólfi og stórum gluggum til suðvesturs og norðvesturs. Möguleiki væri að loka og bæta við þriðja svefnherbergi. Útgengi á svalir.
Svalir: Eru rúmgóðar með hellulögðu svalagólfi. Útsýni til fjalla.
Eldhús: Með harðparketi á gólfi og fallegri dökkri eldhúsinnrétting með miklu borðplássi. Eldhús er opið við stofu og borðstofu með innfelldum ljósum í loftum. Innbyggður kæliskápur með frysti, tveir ofnar (annar combi/örbylgjuofn) og innbyggð uppþvottavél. Gott borðpláss við eyju og stæði fyrir barstóla.
Hjónaherbergi: Er stórt, með harðparketi á gólfi, gólfsíðum gluggum til suðvesturs og suðausturs og góðu skápaplássi.
Svefnherbergi: Með harðparketi á gólfi og gluggum til suðausturs. 
Baðherbergi: Er flísalagt í gólf og veggi.  Versace flísar á gólfum. Flísalögð sturta með glerhurð, upphengt salerni og handklæðaofn.  Gott skápapláss með upphækkun undir þvottavél og þurrkara.

Stutt er í grunnskóla , íþróttasvæði og sundlaug. Frábærar hjóla- og gönguleiðir í næsta nágrenni og alla útvist í kringum Úlfarsfell.
Möguleiki að vera með gæludýr.

Nánari upplýsingar:
Gylfi Þór lögg. fasteignasali / gylfi@valholl.is / 7704040

Verðsaga

2 þinglýstir kaupsamningar
Í sölu núnaÁsett verð · Valhöll
89.900.000 kr.847 þ./m²
+10,3% á 2 árum
19. júní 2024Þinglýstur kaupsamningur
81.500.000 kr.768 þ./m²
+51,5% á 4 árum
23. október 2020Fyrsta sala
53.800.000 kr.507 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Iðunnarbrunnur 12

113 Reykjavík
89.900.000 kr.847 þ./m²
Hæð2 svefn · 1 bað
Byggingarár2020TegundHæðStærð106,1 m²Herbergi4FasteignanúmerF250997412Fasteignamat84.100.000 kr.Brunabótamat67.550.000 kr.
Skráð hjá
Valhöll
HeimilisfangSíðumúli 27, 108 ReykjavíkSími588-4477

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 29 myndir

Upp ↑