fasteignasölur.is
Vallengi 13
1 af 21

Um eignina

Fasteignasalan Hraunhamar og Einar Örn lgf. kynna til sölu vel skipulagða þriggja herbergja íbúð á 2. hæð við Vallengi 13 í Reykjavík. Íbúðin er skráð 91,5 fm samkvæmt FMR.

Eignin skiptist í: Forstofu, hol, stofu, borðstofu, eldhús, baðherbergi, tvö svefnherbergi, svalir og útigeymslu.

- Sérinngangur
- 2 svefnherbergi
- Rúmgóðar suðvestursvalir
- Sameiginlegar rafhleðslustöðvar á bílastæði
- Árleg sumarhátíð íbúa


Nánari lýsing: 
Forstofa er flísalögð með fatahengi.
Baðherbergi er dúkalagt með salerni, baðkari með sturtu, spegli og innréttingu undir handlaug. 
Eldhús er parketlagt með svartri L-laga innréttingu með timburborðplötu. Frístandandi eldavél með hellum og háfur yfir helluborði. 
Stofa/borðstofa er björt, parketlögð með panelklæddum vegg og útgengi á rúmgóðar suðvestursvalir.  
Hjónaherbergi er parketlagt með tvöföldum fataskápum upp í loft. 
Barnaherbergi er parketlagt. 
Þvottahús/geymsla er parketlögð með tengingu fyrir þvottavél og skolvask. 
Ris er yfir hluta íbúðar og er nýtt sem geymslu- og hobbýrými. Rýmið er ekki innifalið í skráðri fermetratölu eignarinnar.
Köld geymsla við inngang íbúðar.

Um er að ræða einstaklega vel staðsetta fjölskyldueign á vinsælum stað þar sem stutt er í leikskóla, grunnskóla, verslun og helstu þjónustu.

Allar nánari upplýsingar veitir Einar Örn Ágústsson löggiltur fasteignasali, s: 888-7979 eða á einar@hraunhamar.is

Skoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Hraunhamar fasteignasala vill benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga fyrir nánari ástandsskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.    Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2.    Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. – 3.800 kr. af hverju skjali.
3.    Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4.    Umsýslugjald til fasteignasölu skv. þjónustusamningi

Hraunhamar er elsta fasteignasala Hafnarfjarðar, stofnuð 1983.
Hraunhamar, í fararbroddi í rúm 40 ár – Hraunhamar.is 
Smelltu hér til að fá frítt söluverðmat.

Verðsaga

2 þinglýstir kaupsamningar
Í sölu núnaÁsett verð · Hraunhamar
71.900.000 kr.786 þ./m²
+87,2% á 8 árum
21. janúar 2019Þinglýstur kaupsamningur
38.400.000 kr.420 þ./m²
+100,0% á 13 árum
18. júlí 2006Fyrsta sala
19.200.000 kr.210 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Vallengi 13

112 Reykjavík
71.900.000 kr.786 þ./m²
Fjölbýlishús2 svefn · 1 bað
Byggingarár1995TegundFjölbýlishúsStærð91,5 m²Herbergi3FasteignanúmerF22191282Fasteignamat67.700.000 kr.Brunabótamat49.600.000 kr.
Skráð hjá
Hraunhamar
HeimilisfangBæjarhraun 10, 220 HafnarfjörðurSími520-7500

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 21 myndir

Upp ↑