fasteignasölur.is
Arnarhraun 33
Opið hús á morgun kl. 17:00–17:30
1 af 37

Um eignina

Guðmundur Þór Júlíusson & Ástþór Reynir löggiltir fasteignasalar hjá RE/MAX fasteignasölu kynna í einkasölu:

Björt og vel skipulögð fjögra herbergja sérhæð með bílskúr við Arnarhraun 33. Eignin telur alls 127,3 fm þar af bílskúr alls 32,7 fm. Stutt er í alla helstu þjónustu eins og leikskóla og grunnskóla og annar þjónustu.
Húsið er virkilega stnyrtilegt og vel við haldið.

Bókið skoðun hjá Ástþór Reynir í síma 899-6753 eða með tölvupósti á netfangið arg@remax.is eða íhjáGumma Júl í síma 858-7410 eða gj@remax.is

Nánari lýsing eignar:
Forstofa/stigagnagur er snyrtileg með teppi á gólfum og stiga. Af stigapallinum er gengið út á svalir til suð/vesturs.
Eldhúsið er með góðu skápa og borðplássi, flísar á milli efri og neðri skápa. Borðkrókur og flísar á gólfi.
Stofan er rúmgóð og björt, parket á gólfum. 
Hjónaherbergið er með parketi á gólfi og stórum fata skáp
Barnaherbergi er með parketi á gólfi.
Barnaherbergi er með parketi á gólfi.
Baðherbergið er nýlegt með ljósum flísum á gólfi og veggjum, og upphengdu salerni. Sturta með innbyggðum tækjum, dökk innrétting, veggskápur og handklæðaofn. 
Geymsla á jarðhæð.
Bílskúr snyrtilegur með rafdrifni hurð. Kalt - heit vatn og rafmagn.
Þvottahús á jarðhæð og er sameiginlegt með efstuhæðinni. Úr þvottahúsinu er útgengi út í garð.

Garðurinn er einstaklega snyrtilegur og liggur að hrauni í ósnertri náttúru.

Skv. eiganda hefur eignin fengið eftirfarandi viðald sl. ár:
2026 þvottahús málað.
2026 múrviðgert og málað að utan.
2025 stigagangur málaður og skiptu um teppi.
2022 baðherbergi tekið í gegn flísalgt, sturta, innrétting og upphengt salerni.
2022 skipt um bárujárn á þaki.
2015 skv. fyrri eiganda, nýtt eldhús, parket og innihurðar.


Allar nánari upplýsingar um eignina veitir: 
Guðmundur Þór Júlíusson löggiltur fasteignasali í síma 858-7410 eða gj@remax.is
Ástþór Reynir löggiltur fasteignasali í síma 899-6753 eða arg@remax.is

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - skv. gjaldskrá lánastofnunar
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.

Verðsaga

1 þinglýstur kaupsamningur
Í sölu núnaÁsett verð · RE/MAX
89.900.000 kr.706 þ./m²
+153,2% á 11 árum
3. mars 2016Fyrsta sala
35.500.000 kr.279 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Arnarhraun 33

220 Hafnarfjörður
89.900.000 kr.706 þ./m²
Fjölbýlishús3 svefn · 1 bað
Byggingarár1958TegundFjölbýlishúsStærð127,4 m²Herbergi4InngangurSameiginlegurBílskúrFasteignanúmerF20734331Fasteignamat76.950.000 kr.Brunabótamat68.200.000 kr.
Skráð hjá
RE/MAX
HeimilisfangSkeifunni 17, 108 ReykjavíkSími477-7777

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 37 myndir

Upp ↑