Um eignina
Um er að ræða þriggja herbergja 75,9 m² raðhúsaíbúð á einni hæð, áætlað er að eignin verði tilbúin til afhendingar í lok árs 2026.
Eigninni verður skilað fullbúinni fyrir utan gólfefni en einnig er mögulegt er að kaupa eignina á fyrri byggingastigum (óklárað) ef kaupendur vilja.
Eignin samanstendur af forstofu, opið alrými með eldhúsi, stofu og borðstofu, tvö rúmgóð svefnherbergi, baðherbergi með sturtu og þvottaðaðstöðu og geymsla.
Útgengt úr stofu út í bakgarð. Forstofa og baðherbergi skilast með flísum á gólfi. Skápur verður í forstofu.
Kaupandi greiðir skipulagsgjald 0,3% af brunabótamati þegar brunabótamat er komið á eignina.
Skilalýsing fyrir íbúðarhúsnæði að Tungubraut 10, 12, 14 Ísafirði
Fjögurra íbúða raðhús á einni hæð
Skilalýsing þessi er fylgiskjal með kauptilboði og kaupsamningi um íbúðir að Tungubraut 10, 12, 14 og 16.
1. Frágangur innanhúss
1.1. Gólfefni Íbúðirnar afhendast tilbúnar undir gólfefni, þ.e. án lokagólfefna í alrýmum og svefnherbergjum. Steyptur gólfhiti er í öllum rýmum íbúðanna. Gólf í anddyri og á baðherbergi afhendast flísalögð.
1.2. Veggir Útveggir (timburgrind) og léttir innveggir (tvöfaldir, hljóðeinangraðir milliíbúðaveggir - 55 dB) eru klæddir með gipsplötum. Veggir eru spartlaðir, grunnaðir og almennt málaðir hvítir. Veggir í votrýmum eru málaðir með viðurkenndri votrýmismálningu eða flísalagðir að hluta í kringum sturtu.
1.3. Loft Loft í íbúðarrýmum eru klædd með hljóðdempandi Troldtekt-plötum (eða sambærilegu). Frágangur á lofti á baðherbergi verður ákveðinn síðar.
1.4. Gler Þriggja laga K-einangrunargler er í öllum gluggum. Ábyrgð framleiðanda er samkvæmt skilmálum söluaðila (Vindunor).
1.5. Hurðir Útihurðir koma frá Vindunor, framleiddar úr furu með álklæðningu að utan og gleri. Innihurðar verða hvítar af gerðinni Swedoor M9 (eða sambærilegt) með gereftum.
1.6. Fataskápar Fataskápur verður í anddyri. Litur og tegund verða valin af arkitekt.
1.7. Eldhús Eldhúsinnrétting, vaskur og blöndunartæki koma frá IKEA. Litur innréttingar verður valinn af arkitekt. Heimilistæki sem fylgja eldhúsi eru ofn, eldavél (helluborð) og uppþvottavél.
1.8. Baðherbergi Gólf á baðherbergi er flísalagt og veggir flísalagðir að hluta í kringum sturtu. Vaskskápur og blöndunartæki verða frá IKEA, BYKO eða Bauhaus. Salerni er upphengt, sturta flísalögð og handklæðaofn fylgir.
1.9. Þvottaaðstaða og geymsla Í Tungubraut 12 og 14 (miðíbúðum) er tengi fyrir þvottavél á baðherbergi. Í Tungubraut 10 og 16 (endaíbúðum) er sérstök geymsla innan íbúðar þar sem er tengi fyrir vask og þvottavél.
1.10. Hitakerfi Gólfhiti er í öllum rýmum. Lagnir (PEX rör með súrefniskápu) eru steyptar í gólfplötu og tengjast varmaskipti sem afkastar 15 kW (neysluvatn 80 kW).
1.11. Loftræsi-, vatns- og þrifalagnir Fráveitulagnir (hljóðdempandi PP) og neysluvatnslagnir (píp-í-píp, polybutylene) fylgja frágengnar samkvæmt teikningum. Vélræn loftræsting (útsog) er í votrýmum en náttúruleg loftræsting í öðrum rýmum.
1.12. Raflagnir, net og lýsing Rafmagns- og fjarskiptalagnir eru í samræmi við teikningar rafmagnshönnuðar. Gert er ráð fyrir inntaki fyrir ljósleiðara/net.
2. Frágangur utanhúss
2.1. Klæðning og einangrun Útveggir (timburgrind) eru einangraðir með 145 mm steinull. Húsið er klædd að utan með sléttum hvítum Walltech-plötum og hágæða bambusklæðningu.
2.2. Þak Þak er uppstólað sperruþak með 3 gráðu og 11 gráðu halla. Einangrun er 220 mm þakull með áfastri vindvörn.
2.3. Gluggar og útihurðir Tré/ál gluggar frá Vindunor (NOR48 kerfi). Gluggar eru úr tré að innan (RAL 9010 - Ren Hvid) og áli að utan (RAL 7022 - Umbra Grå).
2.4. Lóð og bílastæði Bílaplan verður malbikað og stétt steypt upp við húsið. Sorptunnuskýli verður steypt. Lóð afhendist þökulögð eða með sáðu grasi. Sérbílastæði fylgir hverri íbúð þar sem er móttekin lagnaleið/undirbúningur fyrir rafhleðslustöð.
3. Hönnuðir
Arkitektar: M11 Arkitektar (Hugrún Þorsteinsdóttir og Jón Grétar Magnússon)
Burðarþol og lagnir: Verkís (Jóhann Birkir Helgason)
Rafmagn: Tölvubraut ehf. (Svanur Baldursson)
4. Byggingaraðili og seljandi
Seljandi og verktaki: Sterkir Verktakar ehf.
5. Afhendingartími
Áætlaður afhendingartími fyrstu íbúða er í lok árs 2026. Íbúðirnar afhendast í samræmi við samþykktar teikningar og skilalýsingu þessa, en breytingar eru háðar sérstöku samkomulagi.
Nánari upplýsingar og skoðunartima veitir Guðmundur Óli Tryggvason Lögg. fasteignasali, í síma 4563244 og 8208284, tölvupóstur eignir@fsv.is
Smelltu hér til að panta frítt söluverðmat eða skrá eignina þína!
Smelltu hér til að fylgja okkur á Facebook
Smelltu hér til að fylgja okkur á Instagram
Skoðunar- og aðgæsluskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Við bendum væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga, 0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnana: vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu samkvæmt gjaldskrá.
Tungubraut 10
Staðsetning
Allar 4 myndir
Upp ↑


