fasteignasölur.is
Bergþórugata 29
1 af 29

Um eignina

RE/MAX og Þorsteinn Yngvason, lögmaður / löggiltur fasteignasali, kynna í einkasölu fallega og endurnýjaða eign með tveimur íbúðum að Bergþórugötu 29, 101 Reykjavík. Vel skipulagðar tveggja herbergja íbúðir sem skiptast í stofu, eldhús, svefnherbergi og baðherbergi. Þá fylgir íbúðinni geymsla í sameign hússins.

 Tvær íbúðir -  Báðar nú þegar í útleigu
 Flottar útleigueiningar
✅ Íbúðirnar voru endurnýjaðar 2025

Upphaflega var íbúðin teiknuð með tveimur svefnherbergjum, en núverandi eigendur eru búnir að breyta eigninni í tvær tveggja herbergja íbúðir. Það eru nýjar neyslulagnir og ofnalagnir innan íbúða. Raflagnir endurnýjaðar innan íbúða með forritanlegum dimmerum. Nýjar innréttingar í eldhúsum og baðherbergjum. Ný gólfefni. Lagt fyrir þvottavél og þurrkara inn á baðherbergi. Allir veggir heilsparslaðir og málaðir. Gluggar lakkaðir. Samkvæmt HMS er birt flatarmál eignarinnar  102,7 fm, þar af er íbúðin 96,5 fm og geymslan 6,2 fm.

Nánari lýsing:
Íbúð 1:

Anddyri: Parket á gólfi.
Stofa/eldhús: Parket á gólfi. Falleg hvít eldhúsinnrétting með eikarborðplötu. Bakaraofn í vinnuhæð, vaskur, helluborð, háfur, innbyggður ísskápur og uppþvottavél.
Baðherbergi: Rúmgott rými. Flísar á gólfi og hluta veggja. Falleg hvít baðinnrétting, spegill, sturta, upphengt salerni og handklæðaofn. Tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Gluggi í rýminu.
Svefnherbergi: Rúmgott rými. Parket á gólfi.

Íbúð 2:
Stofa/eldhús: Parket á gólfi. Falleg hvít eldhúsinnrétting með eikarborðplötu. Bakaraofn í vinnuhæð, vaskur, helluborð, háfur, innbyggður ísskápur og uppþvottavél.
Baðherbergi: Rúmgott rými. Flísar á gólfi og hluta veggja. Falleg hvít baðinnrétting, spegill, sturta, upphengt salerni og handklæðaofn. Tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Gluggi í rýminu.
Svefnherbergi: Rúmgott rými. Parket á gólfi.

Annað:
Íbúðin er mjög vel staðsett, en stutt er í Sundhöll Reykjavíkur og alla þá afþreyingu sem miðbærinn hefur upp á að bjóða.

Allar frekari upplýsingar veitir Þorsteinn Yngvason, lögmaður / löggiltur fasteignasali, í síma 696 0226 eða thorsteinn@remax.is

Verðsaga

1 þinglýstur kaupsamningur
Í sölu núnaÁsett verð · RE/MAX
99.800.000 kr.972 þ./m²
+36,9% á 2 árum
11. október 2024Fyrsta sala
72.900.000 kr.710 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Bergþórugata 29

101 Reykjavík
99.800.000 kr.972 þ./m²
Fjölbýlishús2 svefn · 2 bað
Byggingarár1930TegundFjölbýlishúsStærð102,7 m²Herbergi4InngangurSameiginlegurFasteignanúmerF200822112Fasteignamat83.300.000 kr.Brunabótamat46.650.000 kr.
Skráð hjá
RE/MAX
HeimilisfangSkeifunni 17, 108 ReykjavíkSími477-7777

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 29 myndir

Upp ↑