fasteignasölur.is
Engjaþing 21
Opið hús 12. sept. kl. 13:00–13:30
1 af 41

Um eignina

Margrét Rós, lgf. og Fasteignasalan TORG kynna í sölu einstaklega fallega og vel skipulagða 3ja herbergja útsýnisíbúð með sérinngangi og bílskúr við Engjaþing 21 í Kópavogi. Íbúðin skiptist í forstofu, tvö rúmgóð svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús og opið og rúmgott alrými með eldhúsi, borðstofu og stofu. Frá stofu er útgengt á rúmgóðar suð-austur svalir og frá bakhlið íbúðar er útgengt á skjólgóða og afgirta timburverönd sem snýr vel til sólar. Eigninni fylgir einnig mjög rúmgóður 33,5 m² bílskúr og stór 15,6 m² geymsla. Allar nánari upplýsingar veitir Margrét Rós Löggiltur fasteignasali, í s. 856-5858 eða margret@fstorg.is *** SÆKJA SÖLUYFIRLIT HÉR *** 

Íbúðin er björt og rúmgóð með aukinni lofthæð. Stórir gluggar í alrými hleypa mikilli birtu inn og þaðan nýtur fallegs og víðáttumikils útsýnis. Stórar suðaustur svalir eru að framanverðu og skjólgóðri 24,5 m² timburverönd aftan við húsið sem snýr í vestur. Vandað efnisval einkennir eignina, m.a. granít á borðplötum í eldhúsi og baðherbergi og á sólbekkjum. Staðsetning er góð í Þingunum í Kópavogi þar sem stutt er í verslun og þjónustu ásamt fallegum göngu- og útivistarsvæðum um Heiðmörk og kringum Elliðavatn.

Birt stærð eignar skv. fasteignaskrá HMS er 152,1 m², þar af er íbúðin sjálf 103,0 m², geymsla 15,6 m² og bílskúr 33,5 m².

Nánari lýsing eignar
Forstofa: Sérinngangur inn í forstofu með flísum á gólfi og góðum fataskáp.
Alrými: Eldhús, borðstofa og stofa eru samliggjandi í björtu og rúmgóðu alrými, með aukinni lofthæð og stórum gluggum.
Eldhús: Opið við stofu með parket á gólfi, viðarinnréttingu með granítborðplötu, góðu skápa- og vinnuplássi, innbyggðri uppþvottavél og stórri eyju með helluborði og háfi. 
Stofa og borðstofa: Rúmgóðar með fallegu útsýni. Sólbekkir eru úr graníti og parket á gólfi. Frá stofu er útgengt á góðar 10 m² svalir.
Hjónaherbergi: Rúmgott og bjart með góðum fataskápum og parketi á gólfi.
Svefnherbergi: Rúmgott með góðum fataskápum og parketi á gólfi. Útgengt á skjólgóða og afgirta timburverönd.
Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf, með baðkari, sér sturtu, upphengdu salerni og góðri innréttingu við vask.
Þvottahús: Sér þvottahús innan íbúðar.
Svalir: Rúmgóðar 10 m² svalir með útgengi frá stofu og fallegu, víðáttumiklu útsýni.
Timburverönd: Rúmgóð, skjólgóð og afgirt c.a. 30 m² timburverönd aftan við húsið sem snýr vel til sólar.
Geymsla: Stór 15,6 m² geymsla inn af bílskúr.
Bílskúr: Mjög rúmgóður 33,5 m² bílskúr með sjálfvirkum hurðaopnara og hleðslustöð fyrir rafmagnsbíl. 

FÁÐU FRÍTT VERÐMAT Á ÞÍNA EIGN HÉR

Staðsetning
Eignin er staðsett á góðum og fjölskylduvænum stað í Þingunum í Kópavogi. Stutt er í leik- og grunnskóla, leikskóla, verslun og þjónustu ásamt íþrótta- og útivistarsvæðum. Fallegar göngu- og hjólaleiðir eru í næsta nágrenni og svæðið býður upp á góða tengingu við náttúru og útivist.

Einstaklega falleg og rúmgóð 3ja herbergja útsýnisíbúð með sérinngangi, aukinni lofthæð, rúmgóðum svölum, skjólgóðri timburverönd, stórri geymslu og mjög rúmgóðum bílskúr á góðum stað í Þingunum í Kópavogi.

Nánari upplýsingar veita:
Margrét Rós Einarsdóttir - Löggiltur fasteignasali / s. 856-5858 / margret@fstorg.is
Aðalsteinn Bjarnason - Löggiltur fasteignasali / s.773-3532 / adalsteinn@fstorg.is

KÍKTU Í HEIMSÓKN TIL MÍN Á FACEBOOK
VILTU VITA HVAÐ VIÐSKIPTAVINIR OKKAR HAFA SEGJA? SMELLTU HÉR


Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Væntanlegum kaupendum er bent á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
 

Verðsaga

1 þinglýstur kaupsamningur
Í sölu núnaÁsett verð · Fasteignasalan TORG
104.900.000 kr.690 þ./m²
+272,0% á 15 árum
14. apríl 2011Fyrsta sala
28.200.000 kr.185 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Engjaþing 21

203 Kópavogur
104.900.000 kr.690 þ./m²
Fjölbýlishús2 svefn · 1 bað
Byggingarár2008TegundFjölbýlishúsStærð152,1 m²Herbergi3InngangurSérinngangurBílskúrFasteignanúmerF23021853Fasteignamat95.800.000 kr.Brunabótamat77.250.000 kr.
Skráð hjá
Fasteignasalan TORG
HeimilisfangGarðatorgi 5, 210 GarðabæSími520-9595

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 41 myndir

Upp ↑