Um eignina
Bókið skoðun hjá Hreiðari Levý, lögg. fasteignasala í síma 661-6021, hreidar@betristofan.is eða Jasoni Ólafssyni í síma 775-1515, jason@betristofan.is
Frábær staðsetning í góðu fjölskylduhverfi í Ártúnsholti í Reykjavík þar sem stutt er í grunnskóla og leikskóla. Frábærar hjóla- og gönguleiðir í næsta nágrenni. Stutt er í helstu stofnæðar þar sem hverfið er afar vel staðsett innan höfuðborgarsvæðisins.
Framkvæmdir síðustu ára:
2023
- Skipt um allt gólfefni á efri hæðinni.
2021
- Húsið málað að utan.
- Þakið málað.
2016
- Neðri hæð tekin alveg í gegn.
- Pallur smíðaður.
- Eldhús endurnýjuð, efri og neðri hæð.
- Eldhúsinnrétting á efri hæð sérsmiðuð frá Grindinni í Grindavík – Steinn á borðplötu.
- Öll baðherbergi endurnýjuð, á efri og neðri hæð.
- Gestasalernið á efri hæð tekið í gegn
Aðalhæðin: Afar rúmgóð með góðri forstofu, gestasalerni innaf forstofu, opinni stórri og bjartri stofu með stórglæsilegu útsýni yfir borgina, út á esjuna og út á haf. Rúmgott eldhús með fallegri eldhúsinnrétting og borðkrók, 3 rúmgóð svefnherbergi, nýlega uppgerðu baðherbergi með afar rúmgóðri "walk in" sturtu með innfeldum blöndurnartækjum. Þegar gengið er niður stigann á neðri hæð hússins er búið að koma fyrir þvottaaðstöðu neðst í stigahúsinu. Þar er hurð sem liggur inn í studioíbúðina, þannig að það er auðvelt að tengja hana saman við aðalhæðina kjósi eignadi að gera það.
Nánari lýsing:
Forstofa: Rúmgóð. Fatahengi með skúffum. Flísar á gólfi.
Gestasalerni: Innaf forstofu. Flísalagt í hólf og gólf.
Stofa: Afar rúmgóð og björt. Með fallegum stórum gluggum með stórbrotnu útsýni yfir borgina, út á Esjuna og út á haf. Góð tenging við eldhús.
Eldhús: Endurnýjað fyrir um 10 árum með fallegri sérsmíðaðri innréttingu frá Grindinni. Gott skápa og vinnupláss. Granítsteinn á eldhúsbekkjum með undirlímdum vask. Ofn í vinnuhæð, innbyggð uppþvottavél, helluborð og háfur fyrir ofan helluborð ásamt aðstöðu fyrir ísskáp. Borðkrókur með stórglæsilegu útsýni yfir borgina, út á Esjuna og hafið.
Búr: Innaf eldhúsi með upphengdum skápum og bekkjarplássi.
Svefnherbergi I: Rúmgott með opnum fatahengjum og kommóðum. Útgengt út í garð úr herbergi.
Svefnherbergi II: Rúmgott barnaherbergi.
Svefnherbergi: III: Rúmgott barnaherbergi.
Tengibygging: Tengir saman hæð og bílskúr. Fjölbreyttir nýtingarmöguleikar.
Þvottahús: Gengið niður tröppur á jarðhæð. Aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara. Möguleiki á að opna inn í stúdíóíbúð frá þvottahúsi og samnýta með aðalhæð.
Bílskúr: 54,6fm tvöfaldur bílskúr með rafmagni, heitu og köldu vatni.
Bílastæði: 3-4 bílastæði á bílaplani fyrir framan bílskúr og inngang inn í garð.
Garður: Stór aflokaður garður, hellulagður að hluta og með tyrfðri flöt.
Neðri hæð:
Studioíbúðin: Standsett fyrir um 10 árum. Skiptist í alrými með svefnaðstöðu og elhúskrók ásamt rúmgóðu og fallegu baðherbergi með sturtu. Sérinngangur og sérbílastæði á bílaplani.
Nánari lýsing:
Alrými: Rúmgott og opið með svefnaðstöðu ásamt eldhúsinnrétting með neðri skápum og efri opnum hillum. Eldhús
Gangur: Tengir saman baðherbergi og alrými. Fataskápur á gangi.
Baðherbergi: Fallega uppgert fyrir um 10 árum. Flísalögð sturta með sturtuhengi, baðinnrétting með neðri skúffum, vaski og spegli fyrir ofan vask.
Bílstæði: Sér bílstæði á bílplani.
Tveggja herbergja íbúðin: Standsett fyrir um 10 árum. Gengið inn í forstofu / hol, þaðan er komið inn í afar rúmgóða stofu. Í vesturenda stofu er gengið inn í rúmgott svefnherbegi. Í austurenda stofu er gengið inn í rúmgott og fallegt eldhús. Innaf eldhúsi er þvottahús íbúðar. Auðvelt að bæta við öðru svefnherbergi. Stór aflokaður viðarpallur. Sérinngangur og sérbílastæði á bílaplani. Íbúðin var tekin alveg í gegn 2016 og m.a. baðherbergi og eldhús endurnýjað.
Nánari lýsing:
Stofa: Rúmgóð stofa. Möguleiki að útbúa annað svefnherbergi.
Svefnherbergi: Rúmgott, innaf stofu.
Eldhús: Innrétting með vask, gaseldavél, ísskápur og upphengdur skápur. Borðkrókur.
Þvottahús: Innaf eldhúsi með aðstöður fyrir þvottavél og þurrkara, skolvaskur og upphengdar hillur.
Geymsla: Innan íbúðar.
Baðherbergi: Rúmgott. Baðinnrétting með 4 skúffum og vask ofan á. Stór spegill fyrir ofan vask. Rúmgóð opin sturta með innfeldum blöndunartækjum og glervegg. Upphengt salerni og upphengdur handklæðaofn. Flísar á gólfi og að stórum hluta veggja.
Pallur: Stór aflokaður viðarpallur.
Bílastæði: Sér bílastæði á bílaplani.
Stórt og reisulegt einbýlishús teiknað af Kjartani Sveinssyni með 2 aukaíbúðum og tvöföldum bílskúr í vinsælu, grónu og fjölskylduvænu hverfi í Ártúnsholtinu.
Nánari upplýsingar veitir Hreiðar Levý Guðmundsson löggiltur fasteignasali, í síma 661- 6021, tölvupóstur hreidar@betristofan.is eða Jason Ólafsson í síma 775-1515, jason@betristofan.is
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Betri Stofan fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Betri Stofan fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Verðsaga
3 þinglýstir kaupsamningarHeimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.
Bleikjukvísl 2
Staðsetning
Allar 50 myndir
Upp ↑
















































