fasteignasölur.is
Tjarnarstígur 9
1 af 33

Um eignina

Díana og Hulda löggiltir fasteignasalar hjá fasteignasölunni Lögheimili Eignamiðlun ehf. kynna fallega eign við Tjarnarstígur 9, 825 Stokkseyri, nánar tiltekið eign merkt 01-01, fastanúmer 219-9801 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.

Eignin Tjarnarstígur 9 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 219-9801, birt stærð 229.8 fm2.
Einbýlishús í Stokkseyri frá árinu 1910.

Nánari lýsing:
Forstofa: Falleg með flísum á gólfi.
Borðstofa: Björt borðstofa með parket á gólfi, lofthæð 4-5 metrar.
Stofa/sjónvarpsherbergi: Gengið er niður tvær tröppur í mjög rúmgóða stofu/sjónvarpsherbergi með flísum á gólfi og lofthæð 4-5 metrar.
Eldhús: Nýlegt frá Fríform sérsmíðaður skenkur, parket á gólfi. 
Búr: Hillur, parket á gólfi. 
Gangur: Parket á gólfi.
Svefnherbergi 1: Er rúmgott með parket á gólfi ásamt skápum. 
Svefnherbergi 2: Er rúmgott með parket. 
Baðherbergi: Nýlegt með innréttingu frá Fríform, handlaug, baðkar með sturta, korkur á gólfi.
Þvottherbergi/anddyri: Er mjög gott með flísum á gólfi, allar innréttingar eru sérsmiðaðar frá Frífrom, hægt er að ganga þaðan út í fallegan stóran garð.
Bílskúrinn: Er mjög rúmgóður,flísalagður, millilofti með traustum og góðum stiga ásamt handriði. Það lak í vetur inn með hurðinni en talið er að það sé búið að koma í veg fyrir það en þarf að skoða veggflísar og hurðar.

Búið er að innrétta fallegt rými fyrir aftan bílskúrinn sem hefur baðherbergi með salerni og handlaug. 
Geymsla er tengd við aðalhúsið.

Að sögn eiganda:
Húsið hefur verið mjög mikið endurnýjað, garðurinn tekinn í gegn er með grill húsi og góðri verönd. Búið að skipta um þakplötur. Allt uppgert frá grunni að innan. Allar innréttingar sérsmíðaðar frá Fríform. Verönd smíðuð frá grunni. Veggir á verönd eru með sérvöldu sterku gleri efst. Sérsmíðað grillhús. Möl að sunnan og vestanverðu. Jarðvegur grafinn niður um ca 90 -100 cm.
Malbikað stórt bílaplan fyrir c.a.12 bíla með steyptum köntum.
Upprunalegar tvær ágætar geymslur, gengið inn í geymslur frá verönd í austasta hluta hússins. Veglegur steyptur veggur eftir austanverðu lóðinni og allri suðurhliðinni. Falleg fánastöng er að framan.
Parket er frá Þ.Þorgrímsson og co.

Vestur og suðurhluti eru með sérsmíðum álgluggum og hurðum.

Einstaklega vönduð og falleg eign á þessum frábæra og rólega stað .

Nánari upplýsingar veita
Díana Arnfjörð löggiltur fasteignasali, í síma 895 9989, tölvupóstur diana@logheimili.is.
Hulda Ósk Baldvinsdóttir löggiltur fasteignasali, í síma 771 2528, tölvupóstur hulda@logheimili.is.

Tjarnarstígur 9

825 Stokkseyri
Tilboð
Einbýlishús2 svefn · 1 bað
Byggingarár1910TegundEinbýlishúsStærð229,8 m²Herbergi4InngangurTveir inngangarBílskúrFasteignanúmerF21998011Fasteignamat87.800.000 kr.Brunabótamat110.200.000 kr.
Skráð hjá
Lögheimili Eignamiðlun ehf.
HeimilisfangHlíðasmári 2, Kópavogi, 201Sími530-9000

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 33 myndir

Upp ↑