fasteignasölur.is
Gullengi 39
1 af 40

Um eignina

Betri Stofan Fasteignasala og Dagrún Davíðsdóttir löggiltur fasteignasali kynna vel skipulagða og bjarta 86fm útsýnisíbúð með sérinngangi. Tvö sérmerkt bílastæði fylgja eigninni, annað í opinni bílageymslu og eitt á bílaplani. Afar rúmt er um íbúðina. Fallegt útsýni til suðurs úr stofu og til norðurs úr herbergjum. Gengið út á stórar og rúmgóðar suðursvalir (12,3fm) úr stofu. Eignin skiptist í anddyri, tvö svefnherbergi, hol, þvottahús, baðherbergi og alrými með samliggjandi stofu og eldhúsi, sérgeymsla í kjallara ásamt sérmerktu bílastæði í opinni bílageymslu. Mjög góð staðsetning í Grafarvoginum með leik-, grunn- og framhaldsskóla, fjölbreytta þjónustu í Spönginni ásamt afþreyingar og íþróttamiðstöðinni Egilshöll í göngufæri. 

Nánarí lýsing:
Anddyri
: Gengið inn um sérinngang í anddyri. Flísar á gólfi.
Hol: Tengir saman öll rými íbúðar.
Svefnherbergi I: Rúmgott með góðu skápaplássi, parket á gólfi.
Svefnherbergi II: Fataskápur. Parket á gólfi.
Baðherbergi: Bað með sturtu, klósett ásamt baðinnréttingu með skápum, vask og spegli fyrir ofan vask. Flísar á gólfi og á veggjum við bað og sturtu. 
Þvottaherbergi: Sér þvottaherbergi innan íbúðar með vask og upphengdum hillum.
Eldhús: Innrétting með góðu skápa og geymsluplássi. Skipt var um borðplötu, helluborð og vask/blöndunartæki 2023. Flísar á gólfi.
Stofa: Rúmgóð og björt. Góð tenging við eldhús. Útgengt út á rúmgóðar suðursvalir. Parket á gólfi
Geymsla: Sérgeymsla í kjallara. 5,7fm.
Bílastæði: Sérmerkt bílastæði í opinni bílageymslu ásamt sérmerktu bílastæði á bílaplani.
Sameign: Hjóla- og vagnageymsla í kjallara hússins. 
Garður: Stór sameiginlegur tyrfður garður sunnanmegin við húsið

Góð og vel skipulögð 3 herbergja útsýnisíbúð í rólegu og fjölskylduvænu hverfi í Grafarvoginum með leik-, grunn og framhaldsskóla í göngufjarlægð ásamt fjölbreyttri verslun og þjónustu.

Allar nánari upplýsingar veitir Dagrún Davíðsdóttir í síma 866-1763 / dagrun@betristofan.is



Eignin Gullengi 39 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 221-3891, birt stærð 86.0 fm.

Nánari upplýsingar veitir Dagrún Davíðsdóttir löggiltur fasteignasali, í síma 866 1763, tölvupóstur dagrun@betristofan.is.


Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.  
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Betri Stofan fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Verðsaga

3 þinglýstir kaupsamningar
Í sölu núnaÁsett verð · Betri Stofan fasteignasala
69.900.000 kr.813 þ./m²
+24,8% á 4 árum
24. janúar 2023Þinglýstur kaupsamningur
56.000.000 kr.651 þ./m²
+24,4% á 2 árum
10. desember 2020Þinglýstur kaupsamningur
45.000.000 kr.387 þ./m²
+16,9% á 3 árum
23. febrúar 2018Fyrsta sala
38.500.000 kr.331 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Gullengi 39

112 Reykjavík
69.900.000 kr.813 þ./m²
Fjölbýlishús2 svefn · 1 bað
Byggingarár1994TegundFjölbýlishúsStærð86 m²Herbergi3BílskúrFasteignanúmerF22138914Fasteignamat68.300.000 kr.Brunabótamat51.790.000 kr.
Skráð hjá
Betri Stofan fasteignasala
HeimilisfangBorgartúni 30, 105 ReykjavíkSími519-0100

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 40 myndir

Upp ↑