fasteignasölur.is
Eyjabakki 6
1 af 32

Um eignina

Borgir  fasteignasala kynnir eignina Eyjabakki 6, 109 Reykjavík, nánar tiltekið eign merkt 02-02, fastanúmer 204-7317 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.

Eignin Eyjabakki 6 er skráð sem 3-4ja herbergja íbúð. Birt stærð 110.2 fm.
Eignin er staðsett í enda sem snýr í suð-vestur á 2.hæð með 24,8 fm bílskúr og 7,1 fm geymslu. 

Nánari upplýsingar veita:
Jóhanna Margrét Jóhannsdóttir, lgf, í síma 8200788, tölvupóstur johanna@borgir.is.
Bjarklind Þór, lgf, í síma 6905123,tölvupóstur bjarklind@borgir.is.


Rúmgóð endurýjuð íbúð í Breiðholti

Hjónaherbergi með nýlegum tvöföldum skáp. 
Búið er að gera barnaherbergin tvö að einu stóru en auðvelt að breyta aftur.  
Eldhús/stofa í opnu björtu rými. Nýleg innrétting í eldhúsi með innfeldum vask, helluborði, innbyggðum ísskáp og uppþvottavél,veggháf og kvartstein á borðum.
Svalir snúa í suð-vestur. Fallegt útsýni yfir Elliðaárdalinn og í átt að Esju. 
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf, sturtubaðkar og með tengi fyrir þvottavél og þurrkara. 
Geymsla: í kjallara
Bílskúr: Góður endabílskúr með opnalegum glugga á hliðinni, upphitaður með köldu vatni. Fyrir framan bílskúrinn er bílastæði. 
Sameiginleg vagna-og hjólageymsla er staðsett í sameign í kjallara hússins.
  • Árið 2023 var skipt um gler og gluggalista eftir þörfum í húsinu og tréverk málað. Ný gler í stofugluggum norður.
  • Árið 2022 brotinn niður veggur í eldhúsi og ný eldhúsinnrétting og tæki sett upp. Parket sett á alrými og opinn fataskápur á forstofugagni. Dregið nýtt rafmagn í alrými, eldhús og svalir skipt um tengla og rofa í öllum herbergjum. 
  • Árið 2019 var skipt um fataskáp og gólfefni í svegnherbergjunum.
  • Árið 2015-2016 var skipt um alla ofna í íbúðinni fyrir utan einn inná baðherberginu.
  • Árið 2014-2015 var þak yfirfarið og skipt um þakrennur. Skipt um gler í minna herbergi.  
Myndir sem sýna kozy stemmingu eru tölvuteiknaðar og eiga að gefa hugmyndir um útlit og nýtingu eignarinnar.

Umhverfi: Bílastæðin eru staðsett fyrir framan blokkina en leiksvæðið með rólum og grasflöt er staðsett fyrir miðju hússins. Staðsettning eignarinnar er góð og er því stutt í sem dæmi Mjódd þar sem öll helsta þjónusta er. Stutt í strætó, stutt í gönguleiðir sem dæmi Elliðaárdalinn, stutt í skóla,leikskóla og Breiðholtslaug. 

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.
Vill Borgir því skora væntanlega kaupendur á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bæra sérfræðinga um nánari skoðun.   

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati. 
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana. 
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 79.900 mvsk.

Verðsaga

3 þinglýstir kaupsamningar
Í sölu núnaÁsett verð · Borgir
69.900.000 kr.634 þ./m²
+11,0% á 3 árum
16. október 2023Þinglýstur kaupsamningur
63.000.000 kr.572 þ./m²
+132,5% á 9 árum
6. mars 2015Þinglýstur kaupsamningur
27.100.000 kr.246 þ./m²
+19,4% á 7 árum
26. október 2007Fyrsta sala
22.700.000 kr.206 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Eyjabakki 6

109 Reykjavík
69.900.000 kr.634 þ./m²
Fjölbýlishús2 svefn · 1 bað
Byggingarár1969TegundFjölbýlishúsStærð110,2 m²Herbergi3InngangurSameiginlegurBílskúrFasteignanúmerF204731724Fasteignamat64.950.000 kr.Brunabótamat53.970.000 kr.
Skráð hjá
Borgir
HeimilisfangSkipholt 50c, 105 ReykjavíkSími588-2030

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 32 myndir

Upp ↑