fasteignasölur.is
Vorbraut 1
1 af 23

Um eignina

Þorsteinn Yngvason, lögmaður / löggiltur fasteignasali, hjá RE/MAX fasteignasölu, kynnir í sölu:
Nýjar og glæsilegar íbúðir í 7 íbúða lyftuhúsi að Vorbraut 1 í Hnoðraholti. Stærðir frá 85 fm til 176 fm.


✅ Gólfsíðir gluggar og gólfhiti
✅ Bjartar og vel skipulagðar íbúðir
✅ Fallegar innréttingar og innbyggð sturtutæki

// BÓKIÐ EINKASKOÐUN HJÁ ÞORSTEINI Í SÍMA 696-0226 //

Íbúð 202: Glæsileg þriggja herbergja á annarri hæð, ásamt stæði í bílageymslu. Tvennar svalir og rúmgóð herbergi. Skráð stærð 123,4 fm.

Nánari lýsing:
Anddyri:  Fataskápur upp í loft.
Hjónaherbergi: Fataskápur upp í loft. Rúmgott herbergi. Útgengt út á svalir frá rýminu.
Herbergi: Fataskápur upp í loft. Rúmgott herbergi.
Baðherbergi: Flísar á gólfi og veggjum að hluta, falleg baðinnréttting, sturta með innbyggðum blöndunartækjum og glerskilrúmi, handklæðaofn og upphengt salerni. Gluggi í rýminu. Þvottahús inn af baðherbergi. Innrétting undir þvottavél og þurrkara, ásamt efri skápum.
Stofa/borðstofa: Rúmgott og bjart rými. Útgengt út á svalir. 
Eldhús: Falleg innrétting með eyju, bakaraofn og spanhelluborð.
Geymsla: Í sameign hússins.
Stæði í bílageymslu: Eitt sérmerkt stæði. Gert er ráð fyrir lagnaleið að stæðinu fyrir möguleika á rafhleðslustöð.

Helstu kostir við frágang:
** Við hönnun hússins er tekið mið af því að lágmarka viðhald. Húsið er einangrað að utan, álklætt að utan og gluggar ál-tré.
** Gólfsíðir gluggar sem veita mikla birtu inn í íbúðirnar. Gólfhiti í öllum rýmum íbúðar
** Innréttingar frá Ormsson ehf. og framleiddar af ARENS. AEG eldhústæki frá Ormsson.
** Í stofum eru lofttúður með innbyggðri hljóð- og ryksíu sem tryggja innstreymi og þar með hringrás lofts um íbúðina.
 

Húsið:
Arkitektar og aðalhönnuðir hússins eru Sen&Son arkitektar ehf. Húsið er steinsteypt þriggja hæða fjölbýlishús með 7 íbúðum í einum stigagangi með lyftu. Á 1. hæð er anddyri, geymslur íbúða, tæknirými og tveir innbyggðir bílskúrar. Á 1. hæð eru einnig tvær glæsilegar íbúðir með beinu aðgengi út í garð. Á 2. hæð hússins eru þrjár virkilega flottar íbúðir og á 3. hæð hússins eru svo tvær stórglæsilegar íbúðir, en með þeim fylgja bílskúrarnir. Á lóðinni er bílageymsla með 7 bílastæðum. Bílageymslan er opin að hluta með lokuðum hliðum og upphituðu gólfi. Gert er ráð fyrir lagnaleið að hverju stæði fyrir möguleika á rafhleðslustöð.

Umhverfið:
Húsið er staðsett í Hnoðraholti í Garðabæ. Hverfið er einstakt og nýstárlegt. Þá er hverfið sérlega vel staðsett innan höfuðborgarsvæðisins, miðsvæðis og í nálægð við góðar samgönguæðar. Í næsta nágrenni við húsið eru Vífilsstaðir, golfvöllur GKG, útivistarsvæði Heiðmerkur og nýja íþróttaaðstaða Stjörnunnar í Miðgarði.

Frekari upplýsingar veitir: 
Þorsteinn Yngvason, lögmaður/ löggiltur fasteignasali, 696-0226 eða thorsteinn@remax.is

Vorbraut 1

210 Garðabær
129.900.000 kr.1.054 þ./m²
Fjölbýlishús2 svefn · 1 bað
Byggingarár2024TegundFjölbýlishúsStærð123,2 m²Herbergi3InngangurSameiginlegurLyftaFasteignanúmerF254009732Fasteignamat10.450.000 kr.
Skráð hjá
RE/MAX
HeimilisfangSkeifunni 17, 108 ReykjavíkSími477-7777

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 23 myndir

Upp ↑