fasteignasölur.is
Kuggavogur 11
1 af 20

Um eignina

Trausti fasteignasala kynnir rúmgóða og fallega 2ja herbergja íbúð í nýja Vogahverfinu í 104 Reykjavík. Íbúðin er vel skipulögð og ljósakerfi í henni er með snjallstýringu. Stærð íbúðar er 75,4 fm. og geymsla 7,2 fm.

Vogabyggð er hverfi miðsvæðis á höfuðborgarsvæðinu í nálægð við hafið,  hjóla- og göngustígar liggja meðfram ströndinni sem og upp í Elliðaárdal. Þá er Laugardalurinn innan seilingar. Stutt í þjónustu og verslanir.

Nánari lýsing:
Forstofa er með góðum fataskáp og parket á gólfi.
Eldhús er með snyrtilegri innréttingu með innbyggðri uppþvottavél, eyju með helluborði og skúffum og parket á gólfi.
Stofa/borðstofa eru samliggjandi í opnu og björtu rými með eldhúsi, parket á gólfi. Útgengt út á yfirbyggðar svalir sem eru með hitara með snjallstýringu.
Hjónaherbergi er rúmgott með góðum fataskápum og parket á gólfi.
Baðherbergi er með snyrtilegri innréttingu, upphengt salerni, sturta með glerskilrúmi og flísar á gólfi og að hluta til veggjum. Innrétting fyrir þvottavél og þurrkara með skápum yfir vélum. 
Geymsla er í sameign í kjallara 7,2 fm.
Hjóla- og vagnageymsla eru í sameign í kjallara.

Upplýsingar veita Kristín María Stefánsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 837-1177 eða á netfanginu kristin@trausti.is eða Elísabet Guðmundsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 822-4848 eða á netfanginu elisabet@trausti.is

Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 

Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

Kuggavogur 11

104 Reykjavík
62.900.000 kr.834 þ./m²
Fjölbýlishús1 svefn · 1 bað
Byggingarár2021TegundFjölbýlishúsStærð75,4 m²Herbergi2InngangurSameiginlegurLyftaFasteignanúmerF250687321Fasteignamat66.000.000 kr.Brunabótamat50.500.000 kr.
Skráð hjá
Trausti fasteignasala
HeimilisfangVegmúli 4, 108 ReykjavíkSími546-5050

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 20 myndir

Upp ↑