fasteignasölur.is
Jörfabakki 28
1 af 14

Um eignina

Stór og rúmgóð tveggja herbergja íbúð á 2.hæð, með suðursvölum. Íbúðin skiptist í forstofuhol, svefnherbergi, baðherbergi. eldhús með borðkrók og stofu með suðursvölum. 

Samkvæmt skráningu HMS er birt stærð íbúðarinnar 69,5 fm og þ.a. er geymsla íbúðarinnar í kjallara 4,8 fm. 

Nánari lýsing: Komið er inn í parketlagt forstofurými með fatahengi. Stórt dúklagt svefnherbergi með fataskáp. Baðherbergi er með gólfflísum, vegghengdu  salerni, baðkari og skápum við vask. Parketlögð stofa með svaladyrum út á suður-svalir. Parketlagt opið eldhús með upprunalegri eldhúsinnréttingu, ofni og helluborði. Í eldhúsi við borðkrók eru tengingar fyrir þvottavél og þurrkara. Mjög fallegt parket er á íbúðinni. 

Verið er að ljúka við að einangra og klæða austurhlið hússins. 

Upplýsingar veitir Geir Sigurðsson, löggiltur fasteignasali, s: 655-9000 og netfang geir@husasalan.is 

Jörfabakki 28

109 Reykjavík
51.900.000 kr.747 þ./m²
Fjölbýlishús1 svefn · 1 bað
Byggingarár1970TegundFjölbýlishúsStærð69,5 m²Herbergi2InngangurSameiginlegurFasteignanúmerF20483294Fasteignamat50.300.000 kr.Brunabótamat38.750.000 kr.
Skráð hjá
Húsasalan
HeimilisfangSíðumúla 33, 108 ReykjavíkSími537-9000

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 14 myndir

Upp ↑