fasteignasölur.is
Stálhella 22E
1 af 16

Um eignina

Stefán Jarl lgf. og Remax kynna: Vandað 139,6 m2 geymslubil á tveimur hæðum við Stálhellu 22.

Eignin er skráð skv fasteignaskrá alls 69,8 m2 en búið er að setja upp milliloft yfir allri hæðinni og stiga á milli hæða. Ýmsir möguleikar eru á útfærslu efri hæðar með íverurými eða skrifstofur. 



- VANDAÐUR OG TRAUSTUR BYGGINGARAÐILI -
  • 1-2 mín. akstur á nýjum vegi frá Reykjanesbrautinni. 
  • Tvö aðgangsstýrð hlið inn á afgirt svæði ásamt myndavélakerfi. - sett upp við fyrsta hús. 
  • 160mm þykkar yleiningar í þaki, minna varmatap og betri hljóðeinangrun td. gegn regni.
  • Yleiningarnar eru í C4 tæringarflokki að utan, C2 að innan sem þýðir betri ending og meiri gæði. 
  • Hágæða Epoxy gólf, tveggja þátta epoxy fjölliðuefni með mikið högg og slitþol.  Meiri togstyrkur en í steypu. 
  • Gólfhiti
  • Sér rafmagnsmælir fyrir hvert bil. Borgaðu bara fyrir það sem ÞÚ notar. 
  • Stórir gluggar yfir bílskúrshurð með stórum opnanlegum fögum sem gætu nýst sem flóttaleið.
  • Hágæða hurðir og gluggar úr áli frá Raynaers
  • Hágæða bílskúrshurðir frá Wisniowski. Bílskúrshurðarmótor fylgir.
  • Engin virðisaukaskattskvöð!
  • Bilin eru 6,6m á breidd x 10,5m dýpt, 6,43 m hæð við útvegg, 7,8 m hæð við mæni.
  • Dregið í öll bil fyrir ljósleiðara.
  • Undirstöður & botnplata staðsteypt, niðurfall verður fyrir innan innkeyrsluhurð. 

Burðarvirki, veggir & þak
Húsin eru úr stálgrind, á staðsteyptum sökklum útveggir eru úr 120mm þykkum samlokueiningum og milliveggir í 100mm þykkt. Harðpressuð steinull 100kg./m3 klædd með 0,6mm þykku alumzinki í RAL7016 anthracite gráum að utan, RAL9010 (Pure white) að innan. Einingarnar koma í tæringarflokki C4 að utan en C2 að innan. Þak er gert úr 160mm þykkum steinullareiningum (harðpressuð steinull 100kg/m3) í RAL7016 anthracite gráum að utan, RAL9010 (Pure white) að innan.

Pípulagnir
Lagnir eru utanáliggjandi og sýnilegar, skolvaskur verður uppsettur með heitu og köldu vatni og gólfhiti til upphitunar. Skólp stammi fyrir salerni verður í gólfi í horni. (Salerni ekki uppsett) Gert er ráð fyrir lagnaendum fyrir td. Salerni.
Hitakostnaður eininga er sameiginlegur og skiptist hlutfallslega eftir eignarhluta í samræmi við eignaskiptasamning. 

Raflagnir
Raflagnir eru utanáliggjandi og sýnilegar, greinatafla verður uppsett með 3-fasa rafmagni og einn uppsettur 3-fasa rafmagnstengill þar við hlið. Ljós í lofti, rafmagnstengill í lofti fyrir hurðaopnara (öxuldrifinn hurðaopnari fylgir),  ljósarofi og rafmangstengill við hurð. Einnig verður útilýsing uppsett og tengd við sólúr. Sér mælir er fyrir hverja einingu, staðsettur í inntaksrými hússins.
Tvö aðgangsstýrð hlið uppsett af byggingaraðila, öryggismyndavélakerfi verður einnig uppsett og sett í umsjá húsfélags sem mun mæta mánaðarlegum kostnaði með húsgjöldum.

Ljósleiðari
Cat-5 dreginn inn í hvert bil klár til tengingar ljósleiðara við router frá fjarskiptafélagi að þínu vali. M.ö.o. Lagt inn í hvert bil fyrir háhraða interneti.

Iðnaðarhurð & gönguhurð
Iðnaðarhurð er 3,5 m á breidd og 3,2 m á hæð með gluggafleka, við hlið hennar er gönguhurð, ofan við hana er gluggi með opnanlegu fagi. Einnig eru stórir gluggar ofan við bílskúrshurð með stórum opnanlegum fögum sem gætu nýst sem flóttaleið.
Endabil eru aukalega með glugga með opnanlegu fagi á gafli hússins. 

Bílastæði 
Fjöldi bílastæða verður á lóð og eru þau í sameign allra, bílaplan hvers matshluta verður malbikað samhliða framkvæmdum þess matshluta. 

Lóð 
Lóðin verður afgirt við byggingu fyrsta matshluta með tveimur aðgangsstýrðum aðalhliðum.

Framkvæmdir eftir afhendingu
Nokkrir matshlutar verða á lóðinni og munu þeir verða byggðir samtímis eða hver á eftir öðrum. Framkvæmdir á öðrum matshlutum gætu staðið yfir eftir afhendingu einstakra bila. Mun byggingaraðili reyna að haga svæði í kringum þann matshluta á þann hátt að eigendur verði fyrir sem minnstum truflunum.


Allar nánari upplýsingar veitir:
Stefán Jarl lgf. // stefan@remax.is // 892-9966


Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati hjá einstaklingum. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af kaupsamningi - 1,6% af heildarfasteignamati hjá lögaðilum.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi og fl. 2.500 kr. af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - breytilegt, sjá gjaldskrá á heimasíðum lánastofnana.
5. Umsýslugjald til  fasteignasölu 69.900 kr. m.vsk.
 

Verðsaga

1 þinglýstur kaupsamningur
Í sölu núnaÁsett verð · RE/MAX
43.900.000 kr.314 þ./m²
+20,3% á 1 ári
27. janúar 2026Fyrsta sala
36.500.000 kr.523 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Stálhella 22E

221 Hafnarfjörður
43.900.000 kr.314 þ./m²
Atvinnuhúsnæði
Byggingarár2025TegundAtvinnuhúsnæðiStærð139,6 m²Herbergi2InngangurSérinngangurFasteignanúmerF25403224Fasteignamat25.900.000 kr.
Skráð hjá
RE/MAX
HeimilisfangSkeifunni 17, 108 ReykjavíkSími477-7777

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 16 myndir

Upp ↑