fasteignasölur.is
Hrísmóar 10
Opið hús í dag kl. 17:00–17:30
1 af 25

Um eignina

Fasteignamarkaðurinn ehf. s: 570-4500 kynnir til sölu mjög vel skipulagða og afar vel staðsetta 93,7 fermetra 3ja herbergja íbúð með stórum suðvestursvölum á 2. hæð í litlu fjölbýlishúsi við Hrísmóa 10 í Garðabæ.  Eignin er staðsett í miðbæ Garðabæjar þaðan sem stutt er í verslanir, þjónustu, skóla, sundlaug, heilsugæslu o.fl.   Eignin er laus til afhendingar við kaupsamning.

Lýsing eignar:

Forstofa / hol, flísalagt og með fataskápum.
Eldhús, korklagt og með góðri borðaðstöðu við glugga með útsýni til norðurs. Eldri sprautulakkaðar innréttingar með tengi fyrir uppþvottavél og flísum á milli skápa.
Stofa, mjög björt, rúmgóð og parketlögð með útgengi á stórar svalir til suðvesturs og virkilega fallegu útsýni að Esjunni, Skarðsheiði og víðar.
Gangur, parketlagður.
Barnaherbergi, korklagt.
Hjónaherbergi, stórt, korklagt, fataskápar á heilum vegg og útgengi á stórar svalir til suðvesturs.
Baðherbergi, flísalagt gólf og veggir, innrétting og bæði flísalögð sturta og baðkar.
Þvottaherbergi, flísalagt gólf og innrétting með vaski.

Á jarðhæð hússins eru:
Sérgeymsla, sem er 5,7 fermetrar að stærð.
Sameiginleg hjólageymsla, með útgengi á baklóð.

Húsið að utan þarfnast viðgerða.

Staðsetning eignarinnar er virkilega góð í miðbæ Garðabæjar þaðan sem stutt er í leikskóla, skóla, Sundlaug Garðabæjar, íþróttaaðstöðu Stjörnunnar, verslanir, veitingahús, heilsugæslu og þjónustu.

Allar nánari upplýsingar veittar á skrifstofu Fasteignamarkaðarins ehf. í síma 570-4500 eða á netfanginu fastmark@fastmark.is 
 

Hrísmóar 10

210 Garðabær
TegundFjölbýlishúsStærð93,7 m²Herbergi3Svefnherb.2Baðherb.1
68.900.000 kr.735 þ./m²
Byggingarár1984InngangurSameiginlegurFasteignanúmerF2070789Fasteignamat72.200.000 kr.Brunabótamat49.900.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangÓðinsgata 4, 101 ReykjavíkSími570-4500

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 25 myndir

Upp ↑