fasteignasölur.is
Grettisgata 79
Opið hús 16. sept. kl. 17:00–17:30
1 af 29

Um eignina

RE/MAX og Guðrún Lilja löggiltur fasteignasali kynna í einkasölu: Einstaklega falleg og mikið endurnýjuð þriggja herbergja 83,7 fm. íbúð á 2. hæð í þríbýlishúsi við Grettisgötu 79, Reykjavík.  Með íbúðinni fylgir herbergi í kjallara með eldhúsaðstöðu og sér baðherbergi sem nýst getur sem útleigueining. Bílastæði er fyrir aftan hús. 

Umfangsmiklum framkvæmdum á ytra byrði er nýlega lokið.  Húsið var múrviðgert og málað, skipt um glugga og gler, þak endurnýjað, kvistum og svölum bætt við rishæð sem hefur fegrað mikið ásýnd hússins.  Einnig hefur eldhús og baðherbergi íbúðar verið endurnýjað, ný rafmagnstafla og skólp endurnýjað. Ath. fyrirhugað fasteignamat ársins 2027 er kr. 73.750.000,-

Björt og vel skipulögð íbúð á vinsælum stað ásamt útleiguherbergi með mikla möguleika. Fjölbreytt þjónusta í göngufæri, þá verslun, kaffi- og veitingahús, Sundhöll Reykjavíkur, leik- og grunnskólar ásamt öllu því sem miðborgin hefur uppá að bjóða.


FÁÐU SÖLUYFIRLIT MILLILIÐALAUST MEÐ ÞVÍ AÐ SMELLA HÉR

KÍKTU Í HEIMSÓKN OG SJÁÐU ÍBÚÐ Á 2. HÆÐ Í 3D MEÐ ÞVÍ AÐ SMELLA HÉR

KÍKTU Í HEIMSÓKN OG SJÁÐU STUDIOHERBERGI KJALLARA Í 3D MEÐ ÞVÍ AÐ SMELLA HÉR


Nánari upplýsingar gefur Guðrún Lilja Tryggvadóttir, löggiltur fasteignasali í síma 867-1231, gudrunlilja@remax.is 

Nánari lýsing íbúð á 2. hæð, skráð 69,3 fm. að stærð. Komið inní forstofuhol sem tengir saman öll rými íbúðar. 
Eldhús hefur verið endurnýjað, falleg hvít eldhúsinnrétting með viðarborðplötu. Helluborð og bökunarofn.
Tvö svefnherbergi, bæði mjög rúmgóð og björt.
Stofan er rúmgóð og björt. Stórir gluggar og aukin lofthæð gefa íbúðinni einstaklega mikinn sjarma.
Baðherbergið hefur verið endurnýjað. Flísalagt í hólf og gólf. Sturta, upphengt salerni, vaskur og spegill.
Harðparket er á allri íbúðinni fyrir utan baðherbergi. 

Nánari lýsing á herbergi í kjallara, ath. skráð á fasteignayfirliti sem geymsla íbúðar:
Svefnherbergið er rúmgott um 14,4 fm. að stærð.  Eldhúsinnrétting með ísskáp, vask og pláss fyrir barstóla. 
Sérbaðherbergi er með sturtu og salerni fyrir herbergið í sameigninni. Flot á gólfi. Flísalagt í hólf og gólf. Sturta, vaskur, upphengdur speglaskápur og salerni.  (Ath baðherbergi eru auka óskráðir um 4 fm.)
Herbergið er nýlega yfirfarið, parketlagt og málað. 

Sameiginlegt þvottahús er í kjallara, sértengill fyrir íbúð.  Eigninni fylgir ss. skv. eignaskiptayfirlýsingu sérafnotaréttur að geymslu/baðherbergi í kjallara (merkt 00-04). Hlutfallstala í stigagangi er 40,6 % og hlutfallstala í hitakostnaði 38,72 %. Bílastæði eru fyrir aftan hús.

Framkvæmdir og viðhald:
2026 voru umfangsmiklar framkvæmdir á ytra byrði kláraðar. Húsið múrviðgert og málað.  Skipt um glugga og gler. Sett nýtt aluzink bárujárn ásamt þakpappa og útloftunartúðum, nýjar þakrennur og niðurföll.  Settir snjóstoppar á þak og laufgildrur í niðurföll. Kvistum og svölum var bætt við rishæðina sem bætir ásýnd hússins og því húsið í heild fært til fyrra horfs (miðað við upprunalegar teikningar).  Gert var við útidyr bæði að framan og aftan, sett ný hurðapumpa og þær lakkaðar.  Herbergi niðri jafnframt yfirfarið, málað og parketlagt.  
Innan íbúðar hefur eldhús og baðherbergi verið endurnýjað og dregið í nýtt rafmagn að mestu og ný rafmagnstafla.  Búið er að endurnýja skólp út í götu. 

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:  1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati.   2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.  3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.   4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 mvsk.

Verðsaga

3 þinglýstir kaupsamningar
Í sölu núnaÁsett verð · RE/MAX
79.900.000 kr.955 þ./m²
+26,8% á 4 árum
9. ágúst 2022Þinglýstur kaupsamningur
63.000.000 kr.753 þ./m²
+31,3% á 1 ári
3. september 2021Þinglýstur kaupsamningur
48.000.000 kr.573 þ./m²
+43,3% á 2 árum
13. mars 2019Fyrsta sala
33.500.000 kr.400 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Grettisgata 79

101 Reykjavík
79.900.000 kr.955 þ./m²
Fjölbýlishús3 svefn · 2 bað
Byggingarár1929TegundFjölbýlishúsStærð83,7 m²Herbergi5InngangurSameiginlegurFasteignanúmerF20055647Fasteignamat75.100.000 kr.Brunabótamat60.650.000 kr.
Skráð hjá
RE/MAX
HeimilisfangSkeifunni 17, 108 ReykjavíkSími477-7777

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 29 myndir

Upp ↑