fasteignasölur.is
Heiðarlundur 4G
Opið hús 16. sept. kl. 16:30–17:00
1 af 45

Um eignina

FS fasteignir – 571-9992

Heiðarlundur 4G, 600 Akureyri
Bjart og vel skipulagt 4-5 herbergja 151,9 m2 raðhús með bílskúr í Lundarhverfi á Akureyri.
Eignin er afar vel staðsett, stutt er í verslun, leik- og grunnskóla sem og íþróttasvæði KA. 

Eignin skiptist í tvær hæðir
Neðri hæð: Forstofa, þvottahús, borðstofa/stofa, eldhús, gestasalerni og bílskúr.
Efri hæð: Baðherbergi, hol og þrjú svefnherbergi. Tvennar svalir eru á efri hæð.

Forstofa: Flísar á gólfi.
Þvottahús: Er inn af forstofu, þar eru epoxy á gólfi, ljós innrétting með plássi fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð, gott skápapláss og vaskur. Annar inngagur í eignina er í þvottahúsi.
Stofa/Borðstofa: Harðparket á gólfum. Gengið er út á viðarpall til suðurs úr stofu. 
Eldhús: Hvít innrétting með dökkri borðplötu, flísar á milli skápa. Innbyggð uppþvottavél. 
Gestasalerni: Flísar á gólfi. 
Bílskúr: Er inn af forstofu auk þess er útidyrahurð í bílskúrnum, epoxy á gólfi, rafdrifin bílskúrshurð. Skráð stærð bílskúrs er 27,5 m2.
Stigi: Timburstigi með teppalögðum þrepum.
Baðherbergi: Fallegar flísar á gólfi og baðplötur á veggjum. Ljós innrétting með stórum spegil. Baðkar og walk-in sturta. Opnanlegur gluggi er á baðherbegi.
Svefnhergin:
 - Hjónaherbergi: Er rúmgott með góðum fataskáp,harðparket á gólfi, gluggi í norður og útgengt á opnar svalir yfir bílskúr.
 - Svefnherbergi: Var áður tvö herbergi sem hefur verið sameinað í eitt, parket á gólfi, fataskápur og gluggar til suðurs.
 - Svefnherbergi: Var áður partur af holi og svefnherbergi, harðparket á gólfi, fataskápur, gluggi og útgengt á opnar svalir til suðurs.
Hol: Harðparket á gólfi.
Geymsla: Sér geymsla að stærð 19,2 m2 er í sameign í kjallara á vesturhlið hússins.

Annað:
- Fyrirhugað er að fara í endurnýjun á þaki, áætlaður kostnaður á íbúð í kringum 2-2,5 mkr. Búið er að fá verktaka í verkið. 
- Frábær staðsetning.
- Stutt í leik- og grunnskóla.
- Stutt í íþróttasvæði KA
- Eignin er í einkasölu

Nánari upplýsingar í síma 571-9992 eða fsfasteignir@fsfasteignir.is

Skoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. FS fasteignir benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
 
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015 um sölu fasteigna og skipa. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
 
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald sýslumanns af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati eignar.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

FS fasteignir ehf. - Glerárgata 36, 3. hæð - 571-9992 - www.fsfasteignir.is
Friðrik Sigþórsson, löggiltur fasteignasali, s: 694-4220, fridrik@fsfasteignir.is
Svala Jónsdóttir, löggiltur fasteignasali, s: 663-5260, svala@fsfasteignir.is
Sigurpáll Gunnarsson, nemi til löggildingar fasteignasala, s: 618-6126, sigurpall@fsfasteignir.is

Ertu í söluhugleiðingum? Smelltu hér til að fá verðmat og ráðgjöf.
Fylgstu með nýjustu eignunum til sölu hjá okkur á facebook og instagram.

Verðsaga

1 þinglýstur kaupsamningur
Í sölu núnaÁsett verð · FS fasteignir ehf
94.900.000 kr.555 þ./m²
+21,7% á 4 árum
30. desember 2022Fyrsta sala
78.000.000 kr.479 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Heiðarlundur 4G

600 Akureyri
94.900.000 kr.555 þ./m²
Rað-/parhús3 svefn · 2 bað
Byggingarár1976TegundRað-/parhúsStærð171,1 m²Herbergi5InngangurSérinngangurFasteignanúmerF21471961Fasteignamat86.750.000 kr.Brunabótamat85.940.000 kr.
Skráð hjá
FS fasteignir ehf
HeimilisfangGlerárgata 36 3 hæð, 600 AkureyriSími571-9992

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 45 myndir

Upp ↑