fasteignasölur.is
Hlíðarhjalli 52
Opið hús 14. sept. kl. 16:30–17:00
1 af 25

Um eignina

Pálsson Fasteignasala kynnir:

Virkilega hugguleg tveggja / þriggja herbergja íbúð á jarðhæð með skjólsælum sólpalli
Tvíbýlishúsið er í botnlangagötu í grónu og fjölskylduvænu hverfi í Kópavogi

* Sólpallur til suðurs með heitum potti
* Endurnýjað eldhús og parket, endurnýjað baðherbergi að hluta.
* Sérinngangur


Viðhald á húsinu síðastliðin ár tiltelur ma. :
2023 voru raflagnir endurnýjaðar að hluta
2023 var þakjárn og pappi endurnýjaður, sem og raflagnir endurnýjaðar að hluta
2022 var gler í gluggum í stofu endurnýjað.

Nánari upplýsingar veita:
Helen Sigurðardóttir Lgf. í síma nr 766-9500 eða helen@palssonfasteignasala.is
Páll Pálsson Lgf. í S:775-4000 eða palli@palssonfasteignasala.is
www.eignavakt.is
www.verdmat.is 
Góð ráð fyrir kaupendur / seljendur

Birt stærð eignar samkv. HMS er 66,00 m2 og fyrirhugað fasteignamat 2027 er 64.250.000 kr.

Eignin skiptist í forstofu, hol, eldhús, stofu / borðstofu, baðherbergi og 2 svefnherbergi.
Forstofa er flísalögð með fatahengi.
Hol er flísalagt með fataskáp.
Eldhús er með L-laga innréttingu með bakarofn í vinnuhæð, tengi fyrir uppþvottavél og ágætu skápaplássi.
Stofa / borðstofa er með parket á gólfi.
Svefnherbergi 1 er með parket á gólfi og fataskáp. Útgengt út á sólpall.
Herbergi 2 er lítið með parket á gólfi, er merkt á teikningu sem geymsla, var stækkuð líttilega til að rúma herbergi. En er gluggalaust.
Sólpallur er nokkuð rúmgóður og vísar til suðurs, skjólgóður garður og heitur pottur. Þá er þar einnig lítill geymsluskúr.

Fallegt og gróið hverfi þar sem stutt er í skóla, leikskóla sem og fjölbreytta verslun og þjónustu. Stutt er til allra átta og samgönguleiðir mjög góðar, fyrir gangandi, akandi sem og hjólandi. Einnig er stutt í ýmiss konar afþreyingu og fjölmargar leiðir til útivistar.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3,800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.

Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Pálsson fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Verðsaga

1 þinglýstur kaupsamningur
Í sölu núnaÁsett verð · Pálsson fasteignasala
64.600.000 kr.979 þ./m²
+29,2% á 4 árum
20. október 2022Fyrsta sala
50.000.000 kr.758 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Hlíðarhjalli 52

200 Kópavogur
64.600.000 kr.979 þ./m²
Fjölbýlishús1 svefn · 1 bað
Byggingarár1988TegundFjölbýlishúsStærð66 m²Herbergi2InngangurSérinngangurFasteignanúmerF20619666Fasteignamat64.050.000 kr.Brunabótamat40.300.000 kr.
Skráð hjá
Pálsson fasteignasala
HeimilisfangEngjateigur 3, 105 RekjavíkSímiPálsson

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 25 myndir

Upp ↑