fasteignasölur.is
Básbryggja 3
1 af 50

Um eignina

Hólmar Björn Sigþórsson löggiltur fasteignasali og Helgafell fasteignasala kynna í einkasölu Básbryggju 3, íbúð 302, 110 Reykjavík:

Um er að ræða fallega og bjarta 6 herbergja íbúð á tveimur hæðum (efstu hæð) í góðu fjölbýlishúsi. Stæði í bílakjallara fylgir eigninni. Birt stærð eignar samkvæm fasteignaskrá er 130,6 fm. Eignin er staðsett á frábærum stað í suðaustur jaðri Bryggjuhverfis. Stutt er í útivistarsvæði í Grafarvoginn, s.s. Geirsnef, Hamrana, Voginn og alla helstu þjónustu s.s. skóla og leikskóla, verslanir, veitingahús, líkamsræktarstöðvar, strætóstöðvar o.fl.

STUTTUR AFHENDINGARTÍMI. 

SMELLIÐ HÉR TIL AÐ FÁ SENT SÖLUYFIRLIT STRAX


3 hæð (302): Anddyri, stofa /  borðstofa, eldhús, tvö svefnherbergi, baðherbergi og þvottahús. Útgengi er úr stofur út á suður svalir. 
4 hæð (402): Stofa / sjónvarpshol, tvö svefnherbergi. Útgengi er úr stofu út á suður svalir og úr svefnherbergi út á norður svalir. 
Stæði í bílageymslu. Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla á jarðhæð og sérgeymsla í kjallara. 

Nánari lýsing á eign:
Neðri hæð: 
Anddyri: 
Komið er inn í rúmgóða forstofu með fataskápum, mynddyrasími, flísar á gólfi.
Stofa / borðstofa: Rúmgóð og björt samliggjandi stofa og borðstofa með útgengi á suður svalir, úr stofu er steinhringstigi upp á efri hæð, parket á gólfi. 
Eldhús: Með góðri innréttingu, borðkrókur, bakaraofn, helluborð, ísskápur og uppþvottavél sem fylgir með, flísar milli skápa, parket á gófli.  
Hjónaherbergi: Rúmgott, góðir fataskápar, parket á gólfi.  
Svefnherbergi 2: Inn af forstofu, góður fataskápur, parket á gólfi. 
Baðherbergi: Rúmgott, með góðri innréttingu, baðker með sturtu, flísalagt í hólf og gólf.
Þvottahús: Tengi fyrir þvottavél og þurrkara, þvottavél og þurrkari fylgja með, skolvaskur, snúrur, hillur, flísar á gófli.
 
Efri hæð:
Stofa / sjónvarpshol:
Rúmgott opið rými sem er í dag nýtt sem sjónvarpsstofa og setustofa, góð lofthæð, parket á gólfi. Gólfflöturinn á efri hæð er stærri en sagt er til um í fasteignaskrá. 
Svefnherbergi 3: Rúmgott, með fataskáp, útgengi út á norður svalir með fallegu útsýni yfi skrúðgarðinn og Esjuna, parket á gólfi. 
Svefnherbergi 4: Rúmgott, með fataskáp, parket á gólfi. 

Kjallari:
Geymsla: Í sameign í kjallara er 8,2 fm. sérgeymsla (merkt 0001), málað gólf.
Bílastæði:  Í  bílakjallara er sér bílastæði sem fylgir eigninni (merkt B13). Búið er að leggja kapal fyrir rafhleðslustöð.
Sameign: Snyrtileg sameign með sameiginlegri vagna- og hjólageymslu á jarðhæð. 

Húsið: Básbryggju 1-3 / Naustabryggja 2-4 og Naustabryggja 6-10 mynda saman eitt hús. Húsið er steinsteypt fjölbýlishús einangrað og klætt að utan með stáli. Húsið er staðsett á frábærum stað í suðaustur jaðri Bryggjuhverfis.  Í Básbryggja 3 eru fimm íbúðir. 
Lóðin:  Lóðin er 1.841 fm og er í óskiptri sameign.  Íbúðinni fylgir hlutdeild í sameiginlegum skrúðgarði að Evrópskri fyrirmynd sem er í skjólinu á milli húsanna en þar er gras, tré og göngustígar. Afar gott aðgengi með nægum bílastæðum. 
Staðsetning: Smellið hér. 

Í hverfinu eru margir leikvellir og ærslabelgur skammt frá eigninni sem er vinsælt leiksvæði krakka í hverfinu. Stutt er í útivistarsvæði í Grafarvoginn, s.s. Geirsnef, Hamrana, Voginn og alla helstu þjónustu s.s. skóla og leikskóla, verslanir, veitingahús, líkamsræktarstöðvar, strætóstöðvar o.fl. 

Falleg og rúmgóð fjölskyldueign með fjórum svefnherbergjum - Stuttur afhendingartími - Stæði í bílakjallara - Eign sem vert er að skoða. 

Nánari upplýsingar og bókun á skoðun veitir Hólmar Björn Sigþórsson, löggiltur fasteignasali og félagsmaður í Félagi fasteignasala, í síma 893 3276 eða holmar@helgafellfasteignasala.is.
 

----------------------------------------------------------
Heimasíða Helgafells fasteignasölu
Facebook síða Helgafells

- Hafðu samband og við gerum söluverðmat á eign þinni, þér að kostnaðarlausu -

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af fasteignamati fyrir einstaklinga (0,4% fyrir fyrstu kaupendur) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - 3.800 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt í kringum 50þ., oft lægra eða ekkert lántökugjald fyrir fyrstu kaup. Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.
4. Þjónustusamningur milli kaupanda og fasteignasölu - Kr.  92.380,- m/vsk.

Helgafell fasteignasala bendir kaupendum á ríka skoðunarskyldu sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr.40/2002. Skorað er á kaupendur að kynna sér vandlega ástand fasteigna og nýta til þess aðstoð sérfræðinga.  Sömuleiðis er bent á upplýsingaskyldu seljanda samanber 26.gr. Laga nr.40/2002 um fasteignakaup og 25.gr. laga nr.26/1994 um fjöleignarhús. Seljanda er bent á að kynna sér tilvitnaðar lagagreinar.

Básbryggja 3

110 Reykjavík
88.900.000 kr.681 þ./m²
Fjölbýlishús4 svefn · 1 bað
Byggingarár2000TegundFjölbýlishúsStærð130,6 m²Herbergi6InngangurSameiginlegurBílskúrFasteignanúmerF22522037Fasteignamat88.250.000 kr.Brunabótamat85.430.000 kr.
Skráð hjá
Helgafell Fasteignasala
HeimilisfangStórhöfða 33, 110Sími566-0000

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 50 myndir

Upp ↑