fasteignasölur.is
Norðurbyggð 9b
1 af 34

Um eignina

Helgafell fasteingasala og Ragnheiður Árnadóttir, löggiltur fasteignasali kynna til sölu fallegt miðjuraðhús. Húsið er 150 fm samkvæmt HMS, eignin skipitist íbúðarhluti 108,3 fm, bílskúr 32,1 fm og geymsla 9,6 fm. Búið er að byggja pall fyrir framan og aftan húsið.

Eignin skiptist í forstofu, 3 svefnherbergi, eldhús, stofa/borðstofa, baðherbergi,þvottahús/geymsla og bílskúr.

Nánari lýsing:
Forstofa: Gengið er inn í rúmgóða og bjarta forstofu með góðum fataskáp, flísar eru á gólfi.
Stofa/borðstofa: Stór og góð stofa er í opnu rými með eldhúsi. Stórir gólfsíðir gluggar eru í stofu og svalahurð út á rúmlega 20fm pall til austurs. Parket er á gólfinu, innbyggð lýsing í loftum.
Eldhús: Falleg hvít innrétting með heimilistækjum frá AEG, helluborð og gufugleypir eru í eyju, bakarofn í vinnuhæð, uppþvottavél (frontur framan á er til), gert er ráð fyrir tvöföldum ísskáp í innréttingu (ísskápur fylgir ekki). Parket á gólfi.
Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf, góð innrétting með miklu skápa og skúffuplássi, upphengt salerni, walk in sturta, handklæðaofn.
Hjónaherbergi: Rúmgott hjónaherbergi með fataskápum, parket á gólfi.
Herbergi II: Rúmgott og bjart herbergi með fataskáp, parket á gólfi.
Herbergi III: Rúmgott og bjart herbergi með fataskáp, parket á gólfi.
Þvottahús: Þvottahús er inn af bílskúr, innrétting og vélar í vinnuhæð.
Geymsla: Er í sameiginlegu rými með þvottahúsi inn af bílskúr. Þar er hurð til að komast á pallinn sem er bakvið hús. Um er að ræða um 80fm pall til vestur.
Bílskúr: Rúmgóður og snyrtilegur bílskúr, epoxýgólfefni, grind fyrir gólfhitakerfið, stýringar eru í öllum herbergjum fyrir gólfhita. Rafdryfinn hurðaopnari á bílskúrshurð, einnig er inngöngu hurð á bílskúrnum.
Bílaplan: Stórt bílaplan með möl.

Að sögn eiganda:
Búið er að setja snjógildru á vestur hlið þaksins.
Pallur framan við hús var byggður sumarið 2021. 

Falleg eign sem vert er að skoða, fallegt fjölskyldu heimili í grónu hverfi í Þorlákshöfn. Eignin er tóm og getur verið afhent við kaupsamning.

Nánari upplýsingar veitir 
Ragnheiður Árnadóttir, löggildur fasteignasali. 697-6288 eða ragnheidur@helgafellfasteignasala.is
 

----------------------------------------------------------
Heimasíða Helgafells fasteignasölu
Facebook síða Helgafells

- Hafðu samband og við gerum söluverðmat á eign þinni, þér að kostnaðarlausu -

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af fasteignamati fyrir einstaklinga (0,4% fyrir fyrstu kaupendur) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - 3.800 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt í kringum 50þ., oft lægra eða ekkert lántökugjald fyrir fyrstu kaup. Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.
4. Þjónustusamningur milli kaupanda og fasteignasölu - Kr.  92.380,- m/vsk.

Helgafell fasteignasala bendir kaupendum á ríka skoðunarskyldu sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr.40/2002. Skorað er á kaupendur að kynna sér vandlega ástand fasteigna og nýta til þess aðstoð sérfræðinga.  Sömuleiðis er bent á upplýsingaskyldu seljanda samanber 26.gr. Laga nr.40/2002 um fasteignakaup og 25.gr. laga nr.26/1994 um fjöleignarhús. Seljanda er bent á að kynna sér tilvitnaðar lagagreinar.

Verðsaga

2 þinglýstir kaupsamningar
Í sölu núnaÁsett verð · Helgafell Fasteignasala
82.000.000 kr.547 þ./m²
+78,3% á 6 árum
18. ágúst 2020Þinglýstur kaupsamningur
46.000.000 kr.307 þ./m²
+253,8% á 4 árum
9. nóvember 2016Fyrsta sala
13.000.000 kr.87 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Norðurbyggð 9b

815 Þorlákshöfn
82.000.000 kr.547 þ./m²
Rað-/parhús3 svefn · 1 bað
Byggingarár2008TegundRað-/parhúsStærð150 m²Herbergi4InngangurSérinngangurFasteignanúmerF23126666Fasteignamat74.500.000 kr.Brunabótamat76.100.000 kr.
Skráð hjá
Helgafell Fasteignasala
HeimilisfangStórhöfða 33, 110Sími566-0000

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 34 myndir

Upp ↑